Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Blaðsíða 54
212
Núliðarbókmentir Bandaríkjamanna.
IÐUNN
að alls sé getið, sem aðalatriði geti talist. En ég hefi
lagt allmikla áherzlu á, að það kæmi fram, sem ég
tel einna mest máli varða, en það er hið menningar-
lega samhengi bókmentanna innbyrðis og samband
þeirra við líf og menningu þjóðarinnar og umheimsins.
I.
Menningarleg viðhorf.
1.
Eins og allir vita, er Bandaríkjaþjóðin ung og öðru
vísi til orðin en hinar gömlu menningarþjóðir. Ger-
manir, Rómanar, Slavar, Gyðingar, Svertingjar, Mon-
gólar og Indíánar — allir þessir þjóð- og kynflokkar
hafa mæzt þarna á hinu víðáttumikla og kostgóða
landi, hver með sína siði, sínn hugsunarhátt, sitt lyndi.
Ekkert eldra tengdi þá saman. Jafnvel gamall trúar-
bragða-, þjóða- og kynþáttarígur var oft sterkasta
heimanfylgjan. Og svo hófst kapphlaup um gæði lífs-
ins, kapphlaup, sem lofaði miklu, ef vel tækist, en
átti enga miskunn fyrir þá veilu eða veiku. En nátt-
úran var þarna stórbrotin og stórgjöful. Og brátt óx
auður og velsæld jafnvel þeirra, sem höfðu komið ör-
eigar frá sínu móðurlandi — og stærri og æfintýra-
legri framkvæmdir urðu þarna á styttri tíma en dæmi
voru til annars staðar. Þar sem sléttan hafði verið
auð og óbygð hundruð milna til austurs og vesturs,
norðurs og suðurs, risu upp stórbæir á nokkrum ár-
um. Þar sem sléttugróðurinn hafði vaggast í vindin-
um og vísundar reikað, gnæfðu turnar og hallir, og
skröltandi vagnar þutu milli hrikalegra skýjakljúfa.
Hin unga þjóð varð áhrifamikil um fjárhags- og við-
skiftamál heimsins, og henni óx brátt í augum auður