Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Blaðsíða 58
216
Nútíðarbókmentir Bandaríkjamanna.
IÐUNK
það sanna, djúpa og innilega, en frumstæða í eðli
mannanna, án tillits til viðurkendra trúar- eða sið-
ferðislögmála. En í dásömun sinni á hinu frumstæða
varpar hann yfir það gullnum töfraljóma, sem á ekki
alt af mikið skylt við veruleikann — og hann lætur
sér oftast sjást yfir þá staðreynd, að þau áhrif, sem
menning og siðfágun, menningarlegir fordómar og
fjötrar, hafa haft á mannssálirnar, eru ekki síður veru-
leiki en hinar upprunalegu kendir. Jack London verð-
ur því, þrátt fyrir djarfar og stundum óheflaðar lýs-
ingar, fyrst og fremst rómantískt skáld, hressilegt,
fjörmikið, frumstætt, en þó glæsilegt í fasi.
Vík ég svo að jötnunum tveimur, sem á herðum
sér hafa lyft hinum nýju listaskáldum upp í þá list-
arinnar hliðskjálf, sem þau nú byggja. Þessir jötnar
eru þeir Upton Sinclair og Theodore Dreiser.
2.
Þeir hafa unnið hvor sitt stórvirki, brotið brautina
hvor á sínu ákveðna sviði. Upton Sinclair hefir dreg-
ið svo skýrt fram í dagsljósið, að allir hafa að lok-
um séð og viðurkent, hve villimenskan og miskunnar-
leysið er ríkt í hinu ameriska skipulagi og í amerisk-
um félagsmálum, hve þrældómurinn í landi frelsisins
er gagnger hið ytra og innra. Theodore Dreiser hefir
aftur á móti með ögrandi hlifðarleysi fyrst og fremst
bent á ofurvald ástríðanna, sem brýzt fram í blindni,
hvers konar lögmálsfjötrar, sem eru á þær Iagðar,
og verið svarinn fjandi og voðaskelfir hinnar þröng-
sýnu, gömlu siðferðishyggju.
Upton Sinclair er af blönduðu blóði Suður- og
Norðurríkja. í honum mætast andstæður Bandaríkja-
þjóðarinnar, skapa óró og stríð, er heimtar fastar og