Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Blaðsíða 61
IÐUNN
Nútíðarbókmentir Bandaríkjamanna.
219
ar ef til vill einhverjar hinar áhrifamestu og um leið
ógnþrungnustu þjóðfélagslegar ákærur, sem fram hafa
verið bornar, því jafnvel hin blinda ófyrirleitni og
grómteknasta mannúðarleysi í notkun iíkams- og
sálarkrafta til framleiðslu verðmæta er þó eins og
mannlegra en hin tilgangslausa tortiming hinna sömu
verðmæta. Af öðrum skáldsögum Sinclairs vil ég
nefna þær tvær, sem, auk sögunnar Á refilstigum,
eru þýddar á íslenzku. Eru það þær Smiður er ég
nefndur og Jimmie Higgins, sem Ragnar E. Kvaran
hefir báðar þýtt af mikilli vandvirkni.
Eins og ég hefi áður á drepið, hefir Sinclair einnig
skrifað rit, sem ekki eru í skáldskaparformi, og má
*elja, að þau séu fult svo þýðingarmikil sem skáld-
sögurnar — ekki að eins þjóðfélagslega, heldur og
fyrir þróun bókmentanna. Þar þarf hann ekki að búa
til atburðarás og persónur, sem hann síðan verði að
taka tillit til. Staðreyndirnar taka við ein af annari,
raðað af óyggjandi rökvísi og bornar uppi af mark-
vissum, heitum og magnþrungnum stíl. Hann gagn-
rýnir blöð, kirkju, skóla og bendir á, hvernig allar
þessar stofnanir standi í sambandi við Bandaríkja-
óollarann og þá, sem hans hreyfingum og háttum
sfjórna.
Það þarf ekki að taka það fram, að stríð og styr
hefir staðið um Sinclair. — og i fyrstu voru áhang-
endurnir fáir og máttarlitlir á móts við andstæðinga-
t'ópinn. En árásirnar og alt það, sem gert var til að
koma í veg fyrir, að bækur hans væru gefnar út og
Ireyptar, varð ekki til að kefja þrótt lians, áhuga og
aræði. í sambandi við hann og Dreiser þykir mér verða
aó geta hins mikla ritsnillings og róttæka ritskýranda,
Menckens, sem árum saman hefir barist eins og ljón