Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Blaðsíða 71
IÐUNN
Nútiðarbókmentir Bandaríkjamanna.
229
Upton Sinclair og Theodore Dreiser. En hann er sér-
stæður að stíl, persónulýsingum og fratnsetningu, full-
komnari, víðáttumeiri og markvissari ett nokkur hinna.
Hann notar mikið af löngum orðum og setninguni,
sem eru þungar í vöfum og eins og luralegar, en stór-
brotnar og þrungnar af krafti — og myndir hans og
líkingar eru sérlegar og nýstárlegar, en æfinlega
þannig, að þeim fylgir sá hugblær, sem til er ætlast.
Ahrif hins stórfelda og víðáttumikla lands og hinnar
margþættu hrikamenningar lifir í línunum — og þrátt
fyrir samantvinnuð, margvísleg smáatriði, fjölda af
persónum, erfitt mál og líkingar, sem krefjast mikils
af lesandanum, verður Sinclair Lewis sjaldnast þreyt-
andi. Auk hinna voldugu og hrífandi áhrifa þess jarð-
vegs, sem sögur hans eru sprottnar upp úr og alt af
eru eins og dýpkandi bakgrunnur, er þetta að þakka
hinu hárbeitta háði, sem skiftist á við hlýlega og um-
burðarlynda fyndni og varpar marglitum blæbrigðum
yfir stílinn.
Sinclair Lewis er sonur læknis eins í smábæ í Mið-
ríkjunum — og bókin, sem gerði hann frægan, er
lýsing á smábæjarlífi. Hún kom út árið 1920 og heitir
Main Street (Aðalstræti), en það er nafnið á aðalgöt-
unni í ijölda amerískra smábæja. Kom bókin á fáum
mánuðum út i 20 útgáfum og vakti ekki að eins at-
hygli í Bandaríkjunum og hinni enskumælandi Ame-
riku, heldur einnig í Evrópu. Er fullyrt, að þessi bók
hafi aukið meira álit Bandaríkjabókmentanna í Ev-
rópu en nokkur bók hafði áður gert. Hún dró meira
að segja athyglina að eldri merkisbókmentum ame-
rískum, svo sem skáldsögum Upton Sinclairs og Th.
Dreisers.
Main Street gerist í smábæ vestur á hinni miklu