Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Blaðsíða 74
232
Nútíðarbókmentir Bandaríkjamanna.
TÐUNN
leg, en eigi að síður glögg takmörk fyrir því, hvað
hann má og getur verið þektur fyrir. Og Babbitt,
vesalingur, ætlar að fara að fara sínar eigin leiðir.
En sú ákvörðun stendur ekki lengi. Hann er hreint
og beint lagður í ís umgengniskulda og lítilsvirðing-
ar, og hann er ekki maður til að þola slíka með-
höndlun. Sjálfstæðisþrótturinn verður úti — og svo
er Babbitt tekinn og yljaður við eld samúðar og sarn-
ábyrgðar, honum sýnt, að náð og miskunn sé næg og
útföl, að eins ef hann er skikkanlegur og lætur sér
ekki detta í hug neitt sjálfræðis hopp og hí. En þó
situr það af manndómi eftir i honum, að hann gleðst
af að sjá, að unga kynslóðin fer sínar eigin leiðir.
í bók þessari er alt gert af hagleik, skarpskygni
og list. Menn og umhverfi skýrist smátt og smátt við
fjölda smáatriða, er skapa að lokum fullkomna heild-
armynd. Og höfundinuin dettur ekki í hug að gera
persónurnar að neinum ófreskjum. Þær eru mannlegar,
en allar í fjötrum ytri hagsmuna og ytra velsæmis.
Þrátt fyrir alt verður okkur beinlínis vel við Babbitt.
Og að Iokum gleðjumst við með höfundinum yfir því,
að hjá unga fólkinu roðar fyrir degi sjálfstæðs lífs, sem
bygt sé á eðlilegum og sönnum tilfinningum og nýju
og heilbrigðu viðhorfi við vandamálunum, sem mæta.
Af öðrum bókum Sinclair Lewis vil ég nefna
Martin Arrowsmith og Dodsworth. í Martin Arrow-
smith er sýnt viðhorf vísindanna í Bandaríkjunum
við auðnum, sýnt, hvernig sölu- og gróðamöguleik-
arnir yfirgnæfa umhyggjuna fyrir velferð mannanna.
í þessari bók eru ef til vill tilkomumestu persónurn-
ar, sem skáldið hefir skapað. Minsta kosti er óhætt
að segja það, að lýsingarnar á þeim Martin Arrow-
smith og Gottlieb prófessor sýni betur en nokkrar