Kirkjuritið - 01.12.1935, Síða 14

Kirkjuritið - 01.12.1935, Síða 14
KirkjuritiS. HIÐ FAGRA LAND VONANNA. I þriðja kafla Exodus er skýrt frá því, þegar Móse kom að logandi þyrnirunninum og liann lieyrði raust- ina, sem hrópaði: „Móse, Móse! Drag skó þína af fótum þór, því að sá staður, er þú stendur á, er heilög jörð“. Þetta varð upphafið að spámannsköllun lians og hinu mikla æfistarfi. I. Sá maður, sem ekki getur fundið neitt til að dást að, getur heldur ekki fundið neitt til að láta sér þykja vænt um, lil að starfa og lifa fyrir. Maður, sem orðinn er óhæfur til lotningar, á heldur ekki hvöt til neins. Maður, sem ekki getur séð neitt í veröldinni yfir sér eða umhverfis sig til að undrast yfir, til að vegsama eða tilbiðja, hánn er snauður maður. Hann er þá heldur ekki líklegur til að finna neitt hið innra með sjálfum sér til að hughreysta sig við eða láta hvetja sig. Þegar þannig er komið, verður lífið einskis virði fyrir oss. Og þá leiðir það venjulegast livað af öðru, að vér verðum einskis virði fyrir lífið. — Allar framfarir mannkynsins hafa hygxl á þvi, að mönnum hefir smám saman opnast sýn fyrir dásamleg- um hlutum, og þeir liafa lært að virða þá og hera lotn- ingu fyrir þeim. Og vér vitum, að hið sama gildir um einstaka menn. Enginn liefir orðið að mikilmenni fyrr en liann hefir fundið eitthvert það málefni eða ein- hverja þá hugsjón, sem hann liefir orðið svo hrifinn af, að hann hefir verið reiðubúinn að lifa og deyja fyrir hana. Þetta er það, sem gefur lífi einstaklinganna allt

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.