Kirkjuritið - 01.12.1935, Page 38
432
Á. G.: Oxfordhreyfingin.
Kirkjuritife.
Fyrir okkur íslendinga, sem enn skortir persónuleg kynni af
starfi Oxfordmanna, er varlegast að kveða ekki upp neinn fulln-
aðardóm um hreyfinguna að svo stöddu. En það er rétt fyrir
okkur að afla okkur fróðleiks um hana af bókum og blöðum,
svo að við eigum hægara með að átta okkur, þegar við stöndum
andspænis henni hér á landi. Orð Gamaliels i Postulasögunni
hin djúpviturlegu eiga enn við: „Ef þetta ráð eða verk þetta er
af mönnum, verður það að engu, en ef það er af Guði, þá
megnið þér ekki að yfirbuga þá. Eigi má yður það henda, að
þér jafnvel berjist gegn Guði“.
A. G.
FRÉTTIR.
Séra Páll Stephensen,
sem þjónaði síðasl Norðfjarðarprestakalli en áður Holts i Ön-
undarfirði, andaðist í Kaupmannahöfn (i. nóv. eftir langa van-
heilsu. Minningargrein um hann verður að biða næsta heftis
Kirkjuritsins.
Þorgeir Jónsson cand. theol.
hefir verið settur prestur í Norðfjarðarprestakalli. Vígsla hans
fór fram í Dómkirkjunni 24. nóv.
Æskulýðsfundir.
Dagana 17. nóv.—1. des. hafa verið haldnir mjög fjölsóttir
æskulýðsfundir i húsi K. F. U. M. Ýmsir ungir menn hafa flutt
erindi, þar á meðal þrír stúdentar úr guðfræðideild Háskólans.
Einn þeirra, Jóhann Hannesson, og Magnús Runólfsson cand.
theol. hafa stjórnað flestum samkomunum. Magnús hefir einnig
prédikað sjálfur. Enda veitir hann K. F. U. M. forstöðu, meðan
séra Friðrik Friðriksson þjónar Garðaprestakalli á Akranesi.
Fundir þessir bera Ijóst vitni um brennandi áhuga þeirra, seni
að þeim standa, og má gjöra sér vonir um það, að þeir hafi
farið eldi um hugi margra æskumanna, er á þá hlýddu, og start
þeina verði til mikillar blessunar.
A. G.