Andvari - 01.01.1908, Blaðsíða 144
138
Fiskirannsóknir.
ekki litill aíli, þegar menn skreppa aðeins á sjó í
hjáverkum, því þessa daga voru flestir í fýlaferðum.
2. Til Vestfjarða fór eg 5. september með
»Lauru«. Var tilgangur minn aðallega sá, að ná mér
i síld til rannsókna á Bíldudal og Isafirði, því mér
var kunnugt um, að þar liafði veiðst rnikið af smárri
síld nokkru fyr. Eins ætlaði eg að kynna mér nokk-
uð ýtarlega vélarbátaútgerð á fjörðunum, einltum við
ísafjarðardjúp, en af því að Laura tafðist á annan
dag í Stykkishólmi varð dvölin á ísafirði mikið
styttri, en eg liafði búist við.
í Stykkishólmi fann eg fjöl úr bryggju, etna öðr-
um megin af tréœtu. Þar voru 2 vélarbátar, annar
benzín-, cn binn olíubátur, belzt hafðir til flutninga;
nú eru þeir að verða fleiri og ábyrgðarsjóður fyrir
breiðflrzka vélarbáta að komast á stofn. Við brygg j-
urnar mergð af ufsaseiðum, flest á fyrsta ári, 6—10
cm. löng, en engin þorskseiði. I3ar í kring verður
annars vart við skarkola, beilagfiski (spröku) og
þyrskling. Jón Egilsen, verzlunarstjóri, l'ór einu sinni
í sumar kippkorn út fyrir Hólminn til fiskjar og
veiddi á skömmum tíma 60 stútunga. Sýnir það, að
ekki er þar þó Iitið um íisk, ef reynt væri, en það
mun vera fremur lítið. Höfnin i Hólminum er ágæt
fyrir vélarbáta, eins og annars víða þeim megin á
Snæfellsnesi, en langt er að sækja sjó út á bin dýpri
mið (30—60 fðm.), 2—4 mílur danskar, en reyndar
ekki lengra en í Reykjavík.
Úr Patreksfirði gengu í sumar eittlivað 6 vélar-
bátar öðru hvoru til fiskjar.
I Arnarfirði gengu aðeins 2 vélarbátar, er áttu
heima þar, og 2 úr Reykjavík. Fóru þeir út á haf
til fiskjar og öíluðu allvel. Eg sá allan aíla Reykja-
víkurbátanna; það var mikið af smálúðu, skötu og
steinbít, nokkuð af þorski og ýsu. Mjóri er algeng-