Kirkjuritið - 01.04.1936, Side 25
Kirkjuritið.
Kristur og kommúnisminn.
159
höfundur skipulagsins og siðalögmálsins, Lenin skýr-
ir kenningar Marx og stofnar konungsríki hans og
Stalin heldur verkinu áfram — faðir, sonur og heilagur
a'ndi kommúnisma guðleysisins — þessir þrír, og þessir
þrír eru eitt. 1 guSleysingjasafninu í Leningrad standa
þessi orS á stalli Leninsstyttu: „Tiu ár eftir dag Lenins,
og andi hans er enn meSal vor“. Nýtt trúarhragSakerfi
meS sínum helgiformálum og rétttrúnaðarkenningum.
En inn í þetta nýja siðakerfi er blandað beizkju, hatri
og befndarhug frá stofnandanum, Marx, þrætugjörnum
og þungum í skaisi, þótt hann ætti mikla fórnarlund.
Iverfið er þrungið af anda hans og eitrið liefir læst sig'
um það. Þessvegna er kommúnisminn hlaðinn kaunum.
Guðsríkið er aftur á móti stofnað í anda Krists, anda
kærleikans og sjálfsfórnarinnar. Þegar vér opnum líf
vort fyrir auðugum og heitum endurlausnarkrafti hans,
finnum vér heilhrigði og lækningu streyma fram í hverja
æð og taug. Kaunin liverfa, vér erum hraust, hólpin. Á
þessu sviði hefir kommúnisminn ekkert að bjóða. Hvað
verður um innri mein einstaklinganna andleg og siðferði-
leg, þegar búið verður að afmá féndur stéttaskipulags-
ins? Ekkert svar.
Maðurinn þarfnast þess mest að gjörbreytast og það er
grundvallarskilyrði þess, að nýju og traustu heimsskipu-
lagi verði komið á. í stað eigingirni og eyðingar komi bróð-
urást og samstarf. „Ég sé, hvers ég þarfnast“, mælti ind-
verskur stjórnvitringur, „ég þarf að breytast til batn-
aðar, annaðhvort af eigin rammleik eða verma hjarta
mitt við lijarta þess, sem hreyzt liefir á þá lund“. Þau
orð gáfu ekki aðeins innsýn í hjarta hans, heldur í hjörtu
allra manna.
Sé ekkert tillit tekið til þessa frumskilj'rðis í stefnu-
skránni veröldinni til viðreisnar, þá verður hún altaf
ófullnægjandi og hálf. Kommúnisminn gengur fram hjá
þvi. Kristur byggir á því. Þessvegna á oss að vera auð-
velt að velja i milli.