Kirkjuritið - 01.07.1936, Síða 40
294
Kirkjufundur.
KirkjuritiS.
hefðu látið af embætti, og tækju þá aftur til starfa. Séra Magnús
Jónsson prófessor sýndi fram á það, að afturhvarf manna væri
ekki á valdi fundarsamþykta. Séra Bjarni Jónsson dómkirkju-
prestur talaði all-langt mál, lýsti blessun þeirri, er lilytist af
starfi leikmanna fyrir kristnina, og þakkaði þann stuðning, er
hánn liefði fengið frá þeim í prestsstarfi sínu. Væri liann sér
ómetanlega mikils virði. Fór hann fögrum orðum um það verk,
sem unnið væri af leikmönnum í Reykjavík með allskonar safn-
aðarstarfi og fyrirbænum, og minti sérstaklega á það, að fyrir
þessum fundi hefði verið l>eðið, að hann mætti verða lil heilla.
Að lokum bar hann fram þessa tillögu:
„Fundurinn hvetur alla starfsmenn kirkjunnar lil vakandi á-
huga og trúarstarfs á grundvelli kristinnar játningar, svo að
fagnaðarerindi Jesú Krists fái að vera sá kraftur í þjóðlifi voru,
það súrdeig, sem gagnsýrir alt líf og starf kirkjunnar, og að í
engu sé horfið frá heilögum sannindum kristinnar trúar“.
Tillaga þessi var samþykt með samhljóða atkvæðum.
En aðstandendur 14 manna tillögunnar hurfu til hins hezta
ráðs og tóku hana aftur. Sömuleiðis voru teknar aftur aðrar til-
lögur í málinu. Áskorunin lil presta að trúa allri Ritningunni
og kenna samkvæmt játningarritunum eða segja lausu embætti
sínu að öðrum kosti var ekki framar nefnd á nafn á fundinum.
Kristna játningin: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs“
gnæfði í liugum fundarmanna hált yfir játningarritin.
Það var einkum eftirtektarvert við þessar umræður og þeim
Ii 1 lofs, er til máls tóku bæði með og móti 14 manna tillögunni,
að þeir vöruoust að segja nokkuð það, er valda mymli samvinnu-
slitum. Var auðfundin sterk löngun hjá fundarmönnum til þess,
að allir gætu skilið í bróðerni, og fundurinn yrði til þess að efla
samtökin í milli, en ekki hins gagnstæða. Einlæg viðleitni kom
fram lil þess að skilja og meta hverir aðra, þrátt fyrir allan
skoðanamun, og má I. d. nefna í því sambandi falleg og góð-
gjarnleg orð, er Signnindur Sveinsson dyravörður lagði lil mál-
anna.
Olafur Björnsson skýrði frá því i fundarlokin
fyrir hönd nefndar þeirrar, sem kosin var til
þess að ræða prestalcallamálið við kirkjustjórn-
ina, að kirkjumálaráð'herra hefði gefið þau
svör, að hann gæti ekki auglýst prestaköllin laus, því að með þvi
brygðist hann trausti þingsins, en lofaði því að auglýsa þau til
umsóknar, ef næsta þing gjörði ekkert í prestakallamálinu. Hvatti
ræðumaður lil þess, að söfnuðir landsins stæðu enn vel á verði
Áskorun til
kirkjustjórn-
arinnar.