Kirkjuritið - 01.01.1937, Page 9

Kirkjuritið - 01.01.1937, Page 9
Kirkjuritið. Undan jöklinum. 3 til varnar gegn ódygðum, heldur reynt að stæla margt, sem sizt skyldi, ofbeldi og andhælishátt, en minna hirt um það, er gott má af þeim læra. Kristindómurinn er óvirtur, eins og vandræðaástand veraklarinnar sé hon- um að kenna, en ekki kristindómss/ior/mum, kærleiks- skortinum, og kirkja Islands sökuð um auðvaldsþjón- ustu og talin engan tilverurétt eiga. Léttúð og lausung vex —. En hvar skal staðar nema i þessari lýsingu á dauða- öflunum, er drepa þjóðlíf vort í dróma? Nýársgleði vekur hún ekki. En nýársvarnað. Vonzka landsins verður að fá sinn þunga dóm í aug'- um vor allra. Vér þurfum að sjá gráan skriðjökulinn — Hel glottandi yfir oss. Nú þegar lieyrast raddir hróiia: „Gefið loft, gefið loft, gefið lífsandaloft, þvi ég lifi‘ ekki i rotnandi gröf“. En vér skulum ekki æðrast. Sálmurinn, sem sunginn var undir jöklinum, á einnig að vera nýárssálmur vor: A hendur fel þú honum. íslenzka þjóðin er afhragðsvel gefin andlega og lík- amlega, djörf og þrautseig. Hún mun ekki farast sakir skorts á vitsmunum, eins og spakur maður sagði nýlega. Annað yrði henni fremur að fjörlesti. Lífsbaráttan og hætturnar hafa brýnt kjark hennar í aldir. Hún leitar hjargráða meðan hún má, gefst ekki upp fvr en í fulla hnéfa. Móðirin liefir einnig fengið henni góðan heimanbúnað. Kvnslóð af kvnslóð á móðurinni að þakka þann yl, sem heitast vermir. Hún hlés oss í brjóst kærleika til þess, sem fagurt er, satt og gott, vakti og glæddi trúna á Guð og kendi bænamálið. Þótt vér eigum sök á því, hvernig komið er, þá viljum vér enn inst í hjarta það, sem vér lærðum þá. Jafnvel þeir, sem æsast mest gegn kristinni trú, finna, að þeir spyrna gegn broddunum i eigin sál. 1*

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.