Kirkjuritið - 01.05.1937, Blaðsíða 23
KirkjuritiÖ.
KIRKJUBYGGINGAR í VESTUR-
ÍSAFJARÐARPRÓFASTSDÆMI.
Það var eigi fyr en í byrjun þessarar aldar, að farið
var alment í landi hér að byggja kirkjur úr steini (stein-
steypu), en síðan hefir það tíðkast, einkum liin síðustu
árin. Hvatningar biskupsins, sem umsjón hefir með „Hin-
am almenna kirkjusjóði“ og' þekkir manna bezt ástand
allra kirkna i landinu, munu hjálpa lil þessa.
Skýrt liefir verið í blaðafréttum frá byggingum þess-
um flestum jafnóðum. Hér skal sagt nokkuð frá þessari
starfsemi í einu minsta og afskektasta prófastsdæmi
landsins, Vestur-ísafjarðarprófastsdæmi.
I.
Fyrsta steinsteypta kirkjan liér er Þingevrarkirkja i
Hýrafirði, bvgð árið 1910 í stað Sandakirkju, sem þá var
tekin ofan og flutt til kauptúnsins, er þá var orðið nokk-
l*ð fjölment í jaðri Sandajarðar. Bygging þessi er mjög
veglegt hús, tekur yfir 300 manns, bygt í al-gotneskum
stíl eftir teikningu Rögnvalds húsagerðarmeistara Ólafs-
sonar. Turn yfir forkirkju hár og bendir til liæða. Hið
innra er eigi hvelfing, heldur ris, þiljað milli sperra, sem
stjrðjast við ása undir miðju, en þeir aftur hvíla á stoð-
nm frá grunni, er skipta breidd kirkjunnar í 3 bil
(„skip“). Skrautskornir hindiviðir eru á milli þeirra hið
efra; alt málað með sterkum litum. Líking er frá g'ilda-
byggingum miðalda, og kemur hér fram sérkennilegur
alvörusvipur. Mun teiknara hafa komið til hugar að leiða
um þennan kirkjustíl hér í landi, liefði honum enzt
aldur. En skrítið er það, að sé komið inn í dómkirkjuna