Kirkjuritið - 01.01.1938, Blaðsíða 28
22
Friðrik Rafnar:
Janúar.
]oó er markmiðið hið sama á báðum stöðunum, að flytja
þjóðinni fagnaðarerindið. Það eru eflaust margir ófull-
komleikar á því starfi, það er mannlegt, mikils lil of
mannlegt. En starfið á að inna af hendi vegna fagnaðar-
erindisins, og í trúnni á það, að það sé fagnaðarerindið
sjálft, en ekki starf vort, sem muni vinna sigur.
(Lausleg þýðing eftir A. G. Nokkuð stytt).
FERÐ UM NORÐUR-MÚLAPRÓFASTS-
DÆMI SUMARIÐ 1937.
Svo var upphatlega til ætlast, að úr ferð þessari yrði sumarið
1936, en úr því gat ekki orðið vegna veikindataraldurs, er gekk
yfir Múlasýslur þá um sumarið. Töldu prestar prófastsdæmisins,
að gagnslaust væri að koma austur til messugerða og fyrirlestra-
halds, því i flestum sveitum var samkomubann þangað til í sept-
embermánuði. Varð því að ráði að fresta förinni þangað til nú
í sumar, og þá ákveðið, að við Valdemar Snævarr, skólastjóri á
Norðfirði, færum um Norður-Múlaprófastsdæmi, en síra Helgi
Konráðsson á Sauðárkróki og Pétur kennimaður Sigurðsson færu
um Suður-Múlaprófastsdæmi.
Fimtudaginn 15. júlí lögðum við síra Helgi af stað frá Akur-
eyri bílleiðis, og var gert ráð fyrir að mæta Snævarr eystra, og
þá helzt á Egilsstöðnm. Komum við að Egilsstöðum eftir greiða
og góða ferð um nónbil föstudaginn 16. júlí, og höfðum þá tekið
Valdemar Snævarr i Bót. Réðum við svo ráðum okkar á Egils-
stöðum, unz síra Helgi hélt áfram til Reyðarfjarðar, og bjóst við
að mæta Pétri þar einhversstaðar á Suðurfjörðunum, og er hann
úr sögunni.
Laugardaginn 17. júlí vorum við um kyrt á Egilsstöðum og
undirbjuggum ferðalagið. Kom brátt í ljós, er ferðaáætlunin var
athuguð og talað var við presta prófastsdæmisins, að undirbún-
ingur var ekki sem beztur. Hafði ýmislegt skolast í meðförum i
síma, svo sem það, að flestir prestar héldu, að alt annar maður