Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1938, Qupperneq 39

Kirkjuritið - 01.07.1938, Qupperneq 39
Kirkjuritið. Hinn almenni kirkjufundur. 295 fyrir drenginn siiin en þetta? Ég segi nei, og aftur nei. Og mér er kunnugt um, að drengurinn þessi blessar mömmu sína allct æfi fyrir að hún kendi honum aS treysta Guði. Nú, eftir 40 ár, man hann þennan umrædda atburS, eins og þaS hefði verið í gær. Hann hafði aldrei af jarðneskum föður að segja eftir þetta, en var svo gæfusamur, að njóta leiðsagnar móður sinnar til fullorðinsár- anna. Annað dæmi: 12 ára telpa var að dauða komin, eftir fjögra ára langvinn veikindi. Hún var dóttir trúaðrar ekkju, sem hafði kent henni að treysta Guði. Og ógleymanlegt verður það okkur, sem vorum með telpunni, að heyra bænir hennar á þrautastund- unum. Við, börnin, félagar hennar, undruðumst þrek hennar og ró i öllum veikindunum. — Viku fyrir jól var hún orðin svo máttfarin, að hún gat ekkert gert sér til afþreyingar og þoldi ekki að láta hreyfa sig á nokkurn hátt. Þá var það, að eitthvert okkar barnanna var svo ógætið, að fara að tala um það, livað við hlökkuðum til jólanna, eins og börnum er títt. Þá sagði telpan: Nú get ég ekkert gert mér til gamans um jólin. En ég verð þá bara að gleðjast við það, að sjá aðra glaða". — Og hún brosti örlítið við þá tilhugsun. — Ég man, að við dáð- umst að þessu, börnin, en vitanlega skildum við ekki, hvað þetta voru í raun og veru dásamleg orð, af vörum 12 ára barns, mitt í sárustu þjáningunum. Og ég er viss um, að ekkert annað en bjarg- föst trú á góðan Guð liefði getað gefið þessu barni þann styrk, sem þurfti til að bera þjáningarnar. Ég get ekki látið vera að geta þess, að litla stúlkan dó á jóla- nóttina, viku síðar en hún mælti þessi umræddu orð. Og við trúð- um því heitt og hjartanlega, börnin, að þessi leiksystir okkar hefði í raun og veru lifað dýrlegri jól en nokkuru sinni fyr, i hinum nýju heimkynnum sínum handan við gröf og dauða. Frá síðari árum vil ég nefna dæmi um börnin, sem ég hefi kent í heimavistarskólanum að Flúðum. Ég tók þar á móti nokk- urum tugum barna, til dvalar á skólaheimilinu. Ég kveið því fyrst, að þau myndu ekki una sér vel, einkum að þeim mundi ganga öla að sofna fyrstu kvöldin. Flest þeirra höfðu aldrei verið nótt að lieiman, frá pabba og mömmu, fyr en þau komu í skólann. — Og það er stórviðburður í lífi hvers barns, að fara að heiman og dvelja hjá öllum ókunnugum. Og ég vorkendi blessuðum hörnunum. Mér fanst ég ekki geta gert annað betra fyrir þau en vaka yfir þeim fyrstu kvöldin og áminna þau um að' lesa kvöld- bænir sinar. — Þau voru öll vön þvi heima og gerðu það einnig með ánægju á nýja heimilinu. Eg efast ekki um, að þau hafi beðið með ennþá meiri alúð en venjulega fyrsta kvöldið, sem
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.