Kirkjuritið - 01.10.1938, Síða 5

Kirkjuritið - 01.10.1938, Síða 5
Kirkjuritið. Næsti áfanginn. 335 tekið á leiðsögn hennar nenia því aðeins, að vér sjálf höldnm friðinum og forðumst það, að verða sjálfum oss sundurþykk. Ef lil vill ætla sumir, að sá friður og sam- lyndi verði á kostnað hreinskilninnar og sannleikans. En í þeim efnum er ekkert að óttast. Því að eining og eindrægni getur ríkt, þótt skoðanir manna séu ekki ná- kvæmlega hinar sömu, og sérhver haldi sannfæringu í Iiuga síuum. Þess er ekki að vænta, að minni hyggju, að ein lijörð verði nokkurn lima i þeim skilningi, að allir hugsi eins og álvkti. Auðlegð lífsins og fjölbreytni er miklu meiri en svo. Höfundur þess lætur jafnvel ekki tvö laufblöð vera nákvæmlega eins í öllum skógum jarð- arinnar. Þessi undursamlega fjölbreytni er náðargjöf frá honum og á vafalaust að verða mannlífinu lil þroska og blessunar. Guð hefir kallað oss til frelsis, einnig í hugsun og trúarlífi. Vér getum vaxið og þroskasl hvert á sinn hátt, þótt stefna kristni vorar og kirkju sé í insta eðli sínu ein og hin sama. En það er þó vissulega ekki nóg að segja, að stefna vor allra eigi að vera ein og hin sama. Einingarstefna er að vísu fagurt orð, en það lýsir þó ekki öðru en því, að vér eigum að verða samferða. Fyrir því getum vér auðvitað valið oss ramskakka leið og lent á refilstigum. Einingin verður að vera um það, sem tryggir jafnframt rétta stefnu. Og það er aðeins eitt, sem megnar það og vér megum aldrei víkja frá, svo framarlega sem vér viljum með réttu teljast til kristni og kirkju. Það er trú- in á Jesú Krist, krossfestan og upprisinn, Guðs son, sem faðir hans og vor allra birtist í, trú, sem lætur sér ekki aægja varajátningu, heldur leitast við af einlægni og i bænaranda að breyta eftir heilögum boðum hans og lífi. Þá liorfir rétt. Þá verður stefnan bein, jákvæð stefna, ef ég má orða það svo. En það hefir hún ekki verið á liðnum árum allskostar, meðan göturnar hafa verið aðskildar. Þess sem neikvætt var gætti um of. Fylgismenn „nýju guðfræðinnar“ lögðu

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.