Kirkjuritið - 01.10.1938, Qupperneq 24

Kirkjuritið - 01.10.1938, Qupperneq 24
354 Friðrik J. Rafnar: Október. hagslegan straum af því. Ef nú þetta á við um einn söfn- uð, segir það sig sjálft, að það á við um þjóðkirkjuna alla, því að þjóðkirkja íslands er ekki annað en sam- bandsheild þeirra safnaða í landinu, sem játa þjóð- kirkjutrú. Sama er að segja um eignir þeirra kirkna, sem eru lénskirkjur eða sjálfseignarkirkjur, og átt hafa jarðeignir, sem þær fyrrum hafa notið tekna af. Jarðir þessar liafa á undanförnum áratugum flestar verið seld- ar, og' andvirði þeirra runnið í Kirkjujarðasjóð. En hafi þessar kirkjur gert kröfu til andvirðisins, sjálfum sér til framdráttar, t. d. nýbyggingar, eins og nú á sér stað um Akureyrarkirkju, hefir sú krafa ekki verið talin að styðjast við neinn lagalegan rétt. Jarðirnar og andvirði þeirra væru ekki eign kirkjunnar, heldur alþjóðar. Út frá þessum skilningi má geta sér þess til fyrirfram, hve örðug aðstaða kirkjunnar yrði, ef hún krefðist réttar síns og fullkomins fjárliagslegs sjálfstæðis. Svarið yrði á þá leið, að ef við vildum fá vfirráð kirkjunnar í okkar hendur, væri það ef til vill vellcomið, en við yrðum að taka við henni allslausri. Eignirnar væru ríkisins. Þessari hlið málsins verður að gefa gaum, því ekki er víst, að allir hafi gert sér grein fyrir Ijónunum á vegin- um. Hér er ekki staður né stund til þess að fara að deila um lagalegan rétl kirkjunnar frá lögfræðilegu sjónar- miði. Aðeins skal ég lýsa yfir þeirri skoðun minni, og margra annara, hvað sem aðrir kunna þar um að álíta, að kirkjan er í eðli sínu sjálfstæð stofnun, sem upphaf- lega kemst á hér á landi án nokkurs fjárhagslegs stuðn- ings ríkisvaldsins, og þær eignir, •sem henni söfnuðust í kaþólskum sið, voru mestmegnis frjálsar gjafir, sekt- arfé, eða beinlínis keyptar af þáverandi yfirmönnum hennar. Sú breyting, sem varð á fjármálastjórn kirkj- unnar með siðbótinni, þegar mestallar eignir hennar komust i konungshönd, sem æðsta yfirráðanda hennar, getur ekki skoðast að hafa á neinn hátt svift kirkjuna rétti til þessara eigna, ef hún aftur krefst fulls fjárfor-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.