Kirkjuritið - 01.10.1938, Side 28

Kirkjuritið - 01.10.1938, Side 28
358 Kirkjuþing Ev. lút. kirkjufélagsins. Október. níennings á störfum þingsins. Sókn var ágæt, prestar og erindrekar alls 65, og svo fylti heimafólk safnaðanna kirkjurnar við guðsþjónuslur og erindaflutning. Forseti kirkjufélagsins er séra Kristinn Ólafsson, prestur í Seattle í Wasliingtonfylki í Bandaríkjunum. í ársskýrslu sinni hendir hann m. a. á það, liver sé aðal- þrösknldur í vegi þess, að almenn samvinna geti átt sér stað milli Evangelisk-lúterska kirkjufélagsins og Sam- hands kirkjufélagsins, en það er samhand hins síðar- nefnda við Ameriean Unitarian Association. Kveður hann þá sýnu nær um samvinnu kirkjufélaganna, ef því sam- handi væri slitið. Ýms merk mál lágu fyrir þinginu: 1. Heimatrúboð og prestsþjónusta. 2. Erlent trúhoð. 3. Útgáfumál. 4. Betel (gamalmennahælið). 5. Ungmennastarfið. 6. Ivristileg uppfræðsla. 7. Mannfélagsmál og kirkjan. 8. Útvarp á íslenzkum messum. 9. Lagabreytingar. Um erlenda trúhoðið flutti framsöguræðu séra Okta- víus Þorláksson krislnihoði frá Japan, og þykir vera gró- andi í starfi Iians austur þar. Ungmennastarfið eflist einnig, og mun það að tölu- verðu leyti að þakka ungmennamótum, sem lialdin liafa verið. Eilt slíkt mót var í Argjde í sambandi við kirkju- þingið. Þá er í ráði að koma á námskeiði fyrir snnnu- dagaskólakennara. Gegn vínnautn og ofdrykkju voru gerðar samþyktir, enda ekki vanþörf á, því að hvergi er drykkjuskapur jafn ofboðslegur og i Ameríku. Minningarguðsþjónusta um dr. Björn B. Jónsson fór fram á snnnndagskvöldið 19. júní, afmælisdag séra Bjarn- ar. Séra Kristinn Ólafsson og séra Guttormur Guttornis- son fluttu minningarerindi. Svo var stofnaður „Minn- ingarsjóður dr. Björns B. Jónssonar“ til eflingar starfi kirkjufélagsins. Kirkjuþingið virðist að öllu leyti hafa farið fram hið hezta.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.