Kirkjuritið - 01.10.1938, Blaðsíða 33

Kirkjuritið - 01.10.1938, Blaðsíða 33
KirkjuritiS. Frú Guðrún Lárusdóttir. 363 Erindi næsta aðalfund, þeir séra Ásgeir Ásgeirsson, séra Garðar Þor- steinsson og séra Gísli Skúlason. Kirkjusön ur Séra Garðar Þorsteinsson flutti stutt erindi um kirkjusöng hér á landi, og nauðsyn þess, að hann verði bættur. Urðu mjög fjörugar umræður um málið og að síðustu samþykt þessi tillaga: „Fundurinn samþykkir, að fela stjórn Prestafélags íslands að vinna að því, að söngfróður organisti verði fenginn til þess að fara um landið og veita tilsögn og leiðbeiningu varðandi kirkju- söng, auk þess sem hann þess á mitli veitti organistum og organistaefnum ókeypis tilsögn eftir sömu reglum og áður.“ Séra Guðmundur Einarsson próf. sagði frá ferð þeirra Sigurðar Vigfússonar um Snæfellsnes- prófastsdæmi dagana 3.—10. ágúst, og verður nánar frá henni skýrt síðar í Kirkjuritinu. Ólafur Ólafsson kristniboði flutti mjög fróðlegt erindi um starf sitt í Kína. .. Stjórn félagsins var endurkosin og endurskoð- osning st.iornai en(jur rej]ininga þess. Stjórnina skipa því nú: e°nda endUrSk°ð' Séra Árni Sigurðsson. Próf. Ásmundur Guðmundsson. «* Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup. Séra Friðrik Hallgrímsson prófastur. Próf. Magnús Jónsson. Endurskoðendur eru: Séra Kristinn Daníelsson præp. hon. Séra Þorsteinn Briem prófastur. Þrastalundur reyndist ágætur fundarstaður. Húsmóðirin og starfsfólk liennar gjörðu alt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að láta fundarmönnum líða sem bezt og dvölina verða þeim ánægjulega á allan hátt. Náttúrufegurð er mikil þarna í skóginum við Sogið og veðrið var yndislega Sott allan tímann. Milli fundarhaldanna gengu menn saman um skóginn tveir og tveir eða í smáhópum og ræddust við, og var engu minna vert um þau vinakynni og bræðrakynni. Á heimleið til Reykjavíkur var farið um Grafning og Þingvallasveit og komið við að Mosfelli í Mosfellssveit. Voru viðtökur þar hjá prestshjón- unum af mikilli rausn og prýði. Blíðudagar. FRÚ GUÐRÚN LÁRUSDÓTTIR. Á þessu ári hefir enginn atburður snortið þjóðina sárar, en slysið við Tungufljót 20. ágúst síðastliðinn. Vér áttum þar á bak að sjá einni mikilhæfustu konu landsins,

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.