Kirkjuritið - 01.10.1938, Qupperneq 33
KirkjuritiS.
Frú Guðrún Lárusdóttir.
363
Erindi
næsta aðalfund, þeir séra Ásgeir Ásgeirsson, séra Garðar Þor-
steinsson og séra Gísli Skúlason.
Kirkjusön ur Séra Garðar Þorsteinsson flutti stutt erindi
um kirkjusöng hér á landi, og nauðsyn þess,
að hann verði bættur. Urðu mjög fjörugar umræður um málið
og að síðustu samþykt þessi tillaga:
„Fundurinn samþykkir, að fela stjórn Prestafélags íslands að
vinna að því, að söngfróður organisti verði fenginn til þess að
fara um landið og veita tilsögn og leiðbeiningu varðandi kirkju-
söng, auk þess sem hann þess á mitli veitti organistum og
organistaefnum ókeypis tilsögn eftir sömu reglum og áður.“
Séra Guðmundur Einarsson próf. sagði frá ferð
þeirra Sigurðar Vigfússonar um Snæfellsnes-
prófastsdæmi dagana 3.—10. ágúst, og verður nánar frá henni
skýrt síðar í Kirkjuritinu. Ólafur Ólafsson kristniboði flutti
mjög fróðlegt erindi um starf sitt í Kína.
.. Stjórn félagsins var endurkosin og endurskoð-
osning st.iornai en(jur rej]ininga þess. Stjórnina skipa því nú:
e°nda endUrSk°ð' Séra Árni Sigurðsson.
Próf. Ásmundur Guðmundsson.
«*
Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup.
Séra Friðrik Hallgrímsson prófastur.
Próf. Magnús Jónsson.
Endurskoðendur eru:
Séra Kristinn Daníelsson præp. hon.
Séra Þorsteinn Briem prófastur.
Þrastalundur reyndist ágætur fundarstaður.
Húsmóðirin og starfsfólk liennar gjörðu alt,
sem í þeirra valdi stóð, til þess að láta fundarmönnum líða sem
bezt og dvölina verða þeim ánægjulega á allan hátt. Náttúrufegurð
er mikil þarna í skóginum við Sogið og veðrið var yndislega
Sott allan tímann. Milli fundarhaldanna gengu menn saman um
skóginn tveir og tveir eða í smáhópum og ræddust við, og var
engu minna vert um þau vinakynni og bræðrakynni. Á heimleið
til Reykjavíkur var farið um Grafning og Þingvallasveit og komið
við að Mosfelli í Mosfellssveit. Voru viðtökur þar hjá prestshjón-
unum af mikilli rausn og prýði.
Blíðudagar.
FRÚ GUÐRÚN LÁRUSDÓTTIR.
Á þessu ári hefir enginn atburður snortið þjóðina sárar, en
slysið við Tungufljót 20. ágúst síðastliðinn.
Vér áttum þar á bak að sjá einni mikilhæfustu konu landsins,