Kirkjuritið - 01.10.1938, Side 38

Kirkjuritið - 01.10.1938, Side 38
368 Innlendar fréttir. Október. í andlegum efnum og þjóðlegum. Hin kaþólska kirkja brá nú í fyrsta sinn út af fastri venju og fylgdi á fagran hátt þessari há- lútersku konu til grafar. Hún lét hinar miklu klukkur sínar kvcðja hana, og bar hljóm þeirra vítt yfir í hinni alvöruþrungnu þögn, er þá ríkti í höfuðstað landsins. Það kom í ljós, hve fórnfús hugur sameinar. Því varð kveðju- stundin sem talandi túlkun niðurlagskaflans í einni bók hennar um það, að kærleikurinn sigrar. Þ. Br. INNLENDAR FRÉTTIR. Aðalfundur Hallgrímsdeildar var haldinn á Akranesi 26.—28. ágúst s. I. Fundinn sóttu 11 prestar og dr. med. Árni Árnason og Ólafur B. Björnsson kirkju- ráðsmaður. Jón Steingrímsson sýslumaður sat og nokkurn hluta fundárins og tók þátt í umræðum. Aðalmál fundarins var: Sjálfstædi kirkjunnar. Nefnd sú er kosin hafði verið í málinu skilaði áliti sínu. Voru tillögur henn- ár samþyktar með nokkurum breytingum. Var skýrt frá þeim á aðalfundi Prestafélagsins og hnigu J)ær í svipaða átt sem þær tillögur, er framsögumaður málsins þar bar fram. Þá voru ræddar og samþyktar tillögur um messuskifti og fyrir- lestraliald í framhaldsskólunum á deildarsvæðinu, svo sem að undanförnu. Fundir féllu að mestu niður laugardaginn 27. ágúst, með því að prestarnir fóru um morguninn til Reykjavíkur til að vera við jarðarför frú Guðrúnar Lárusdóttur. Flutt voru erindi og guðsþjónustur í Akraneskirkju öll kvöldin. En sunnudaginn 28. ágúst messuðu aðkomuprestarnir á öllum kirkjunum utan Skarðsheiðar og þjónuðu tveir saman, annar í stól, en hinn fyrir altari. í síðustu messunni á Alcranesi voru fundarmenn ásamt allmörgu safnaðarfólki tii altaris. En að lok- inni guðsjDjónustu áttu prestar, sóknarnefnd og fleiri með sér samfund og var honum eftir fjörugar samræður slitið með söng og bæn á miðnætti. Þorsteinn Briem. Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða var haldinn að Suðureyri í Súgandafirði 6. og 7. sept. Hófst hann með guðsþjónustu í nýju kirkjunni. Séra Þorsteinn Jóliannesson prédikaði, en séra Sigurgeir Sigurðsson prófastur Jjjónaði fyrir altari. Aðalmál fundarins var: Foreldrar og börn, og hafði séra Jón Jakobsson framsögu. Auk hans fluttu Jjeir erindi séra Einar

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.