Kirkjuritið - 01.10.1938, Page 38
368
Innlendar fréttir.
Október.
í andlegum efnum og þjóðlegum. Hin kaþólska kirkja brá nú í
fyrsta sinn út af fastri venju og fylgdi á fagran hátt þessari há-
lútersku konu til grafar. Hún lét hinar miklu klukkur sínar
kvcðja hana, og bar hljóm þeirra vítt yfir í hinni alvöruþrungnu
þögn, er þá ríkti í höfuðstað landsins.
Það kom í ljós, hve fórnfús hugur sameinar. Því varð kveðju-
stundin sem talandi túlkun niðurlagskaflans í einni bók hennar
um það, að kærleikurinn sigrar. Þ. Br.
INNLENDAR FRÉTTIR.
Aðalfundur Hallgrímsdeildar
var haldinn á Akranesi 26.—28. ágúst s. I. Fundinn sóttu 11
prestar og dr. med. Árni Árnason og Ólafur B. Björnsson kirkju-
ráðsmaður. Jón Steingrímsson sýslumaður sat og nokkurn hluta
fundárins og tók þátt í umræðum.
Aðalmál fundarins var: Sjálfstædi kirkjunnar. Nefnd sú er
kosin hafði verið í málinu skilaði áliti sínu. Voru tillögur henn-
ár samþyktar með nokkurum breytingum. Var skýrt frá þeim
á aðalfundi Prestafélagsins og hnigu J)ær í svipaða átt sem þær
tillögur, er framsögumaður málsins þar bar fram.
Þá voru ræddar og samþyktar tillögur um messuskifti og fyrir-
lestraliald í framhaldsskólunum á deildarsvæðinu, svo sem að
undanförnu.
Fundir féllu að mestu niður laugardaginn 27. ágúst, með því
að prestarnir fóru um morguninn til Reykjavíkur til að vera
við jarðarför frú Guðrúnar Lárusdóttur.
Flutt voru erindi og guðsþjónustur í Akraneskirkju öll kvöldin.
En sunnudaginn 28. ágúst messuðu aðkomuprestarnir á öllum
kirkjunum utan Skarðsheiðar og þjónuðu tveir saman, annar í
stól, en hinn fyrir altari. í síðustu messunni á Alcranesi voru
fundarmenn ásamt allmörgu safnaðarfólki tii altaris. En að lok-
inni guðsjDjónustu áttu prestar, sóknarnefnd og fleiri með sér
samfund og var honum eftir fjörugar samræður slitið með
söng og bæn á miðnætti. Þorsteinn Briem.
Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða
var haldinn að Suðureyri í Súgandafirði 6. og 7. sept. Hófst hann
með guðsþjónustu í nýju kirkjunni. Séra Þorsteinn Jóliannesson
prédikaði, en séra Sigurgeir Sigurðsson prófastur Jjjónaði fyrir
altari. Aðalmál fundarins var: Foreldrar og börn, og hafði séra
Jón Jakobsson framsögu. Auk hans fluttu Jjeir erindi séra Einar