Kirkjuritið - 01.01.1939, Side 11

Kirkjuritið - 01.01.1939, Side 11
Kirk.juritið. Þakkir og kveðjur. 5 5,15), af því að kipt liefir verið burtu prýði heimilisins, yndi og eftirlæti þeirra, er þar búa. Aflur og aftur höfum vér verið bastarlega á það mint einmitt i þessum bæ, „hve bilið er skamt milli blíðu og éls og brugðist getur lukkan frá morgni til kvelds,“ að „örfáar þverbendur hefir Guð gert daga vora“ og bve áríðandi því er, að vér lærum að telja vora daga, svo að vér verðum forsjálir. Vísast má gera ráð fyrir, að mörgum þessara barmandi ínanna, veiti erfitt að þakka Guði fyrir það, sem barmi þeirra veldur, meðan sviðinn er enn i hjartanu. En frá drottins liúsi sendum vér þessum systkinum vorum innilega sam- úðarkveðju með bæn til Guðs um, að hann vilji vera þeim nálægur með vermandi og græðandi yl kærleika síns á hinu komandi ári og leggja þeim af náð sinni líkn við þraut. En þegar bins vegar vér hinir mörgu, sem drottinn blífði við öllum slíkum áföllum, minnumst þessa á ársins kveldi, bve verður þá ástæðan margföld fvrir oss, sem „gömlu göturnar“ þessa líðandi árs urðu í þessu tilliti bamingjubrautir, að festa oss í hug og hjarta orð postul- ans: „Þakkið jafnan Guði, föðurnum, fyrir alla hluti í nafni drottins vor Jesú Krists.“ En bæði umburðarlyndi Guðs, að bann gekk ekki í réttlætisdóm við oss vegna synda vorra, og miskunnsemi bans við oss, að liann hlífði oss við hinum þungu áföllum sorgar og saknaðar, sem svo margir urðu að reyna, ættu þá líka að gjöra oss bljóðnæma fyrir enn einni rödd frá brautum bins bverfandi árs. En hún er þessi: „Sjá, drott- inn befir minst miskunnar sinnar og trúfesti. Guð er góð- ur og miskunnar sig yfir öll sín verk.“ Vissulega megum vér öll kannast við, að sú rödd liafi engu minni sannleika að flytja oss en liinar, sem ég nefndi áður. Margur maðurinn á meðal vor lagði vafalítið út á þoku- hjúpaðar brautir þessa árs, sem nú er að hverfa, með kviða í sálu vegna eigin afkomu og ástvina sinna, vegna

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.