Kirkjuritið - 01.02.1940, Qupperneq 30

Kirkjuritið - 01.02.1940, Qupperneq 30
68 Jóhann Jóhannsson: Febrúar. starfað að þessari vakningu í Stokkhólmi. En þó er ekki gætnin og varkárnin það eina, sem maður verður að taka tillit til, ef maður vill í alvöru þjóna drotni og hans dýrkeyptu sálum“. Þessi orð Roseniusar lýsa vel skoðun hans á starfinu. Hann hefir þarna gripið á kjarna þeirar starfsaðferðar, sem hann sjálfur notaði. Þessvegna varð honum lika svo vel ágengt, og þessvegna komst liann líka hjá mörgum árekstrum, sem aðrir, seni ákafari voru og ógætnari, lentu í. Rosenius hafði með starfi sínu gjörbreytt áliti alls almenning á vakning- unni, og hin síðari ár fékk hann meira frelsi til að starfa. Árið 1851 var enska kirkjan opnuð, en hún hafði verið lokuð frá því Scott fór úr Svíþjóð. Rosenius sótti um leyfi lil að lialda þar guðsþjónustur sínar, og 1857 var þetta veitt. Þetta var mikill sigur fyrir Rosenius og gerði honum auðveldara að starfa, því að nú þurfti hann ekki lengur að hafa samkomur sínar með leynd í ein- stakra manna húsum. Þá hafði það einnig áunnist, að lög þau, sem hönnuðu trúarsamkomur utan kirkjunnar, voru úr gildi numin árið 1858, og tveimur árum seinna voru sett lög, sem veittu trúfrelsi. Máttu menn nú ganga úr þjóðkirkjunni og i annað trúarsamfélag. Loksins eftir mikla baráttu og ofsóknir hafði vakningarfólkið náð þess- um langþreyða áfanga. Rosenius var maður heilsutæpur, og hin sifeldu ferða- lög hans víðsvegar um Svíþjóð slitu mjög kröftum hans. Árið 1867 var hann staddur í Gautaborg á prédikunar- ferðalagi. Hann messaði þar á hvítasunnudag, en meðan á ræðunni stóð, fékk hann slag, og varð að bera hann út úr kirkjunni. Hann náði þó nokkurri heilsu aftur, og byrjaði á starfi sínu i Stokkhólmi, en varanlegur bati varð þó ekki. Hann dó 24. febr. 1868, aðeins 52 ára gam- all. Viku fyrir dauða sinn hafði Rosenius prédikað í sið- asta sinni í Stokkliólmi. Þá lagði hann út af Jes. 53 og var það sami textinn, sem hann hafði notað er liann prédikaði i fyrsta sinni i Stokkhólmi fyrir 26 árum. Siðasti

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.