Kirkjuritið - 01.02.1940, Blaðsíða 42
80
Merkilegt sagnarit.
Febrúar.
enn meira átt að gæta fróðleikssöfnunar séra Jóns og ritstarfa,
]jví að það eru í raun og veru þau, og þau ein, er lyfta honum
upp úr öllum hóp samtíðannannanna. Að öðru leyti er hann í
raun og veru lítið annað en venjulegur samvizkusamur em-
bættismaður, sem situr mestan part æfinnar i einu hægasta og
umsvifaminsta, en jafnframt einu lífvænlegasta embætti lands-
ins. Ef ekki liefði verið fræðimenska hans, myndi engum detta
í hug að skrifa um hann nema fáeinar línur í upptalningum
Hítardalsklerka. En eins og höf. bendir réttilega á, er fræði-
menska séra Jóns frábær og grundvallandi fyrir allar sögu-
rannsóknir síðan.
Hitt er annað mál, að þó að saga séra Jóns sé að öðru leyti
ekki sérlega viðburðarík, þá vinnur höf. inn í hana allskonar
fróðleik um samtið hans, aldaranda og umhverfi, heldri menn
og merkisviðburði, og gerir liana með því mjög læsilega.
Dr. Jón Helgason liefir ineð þessum jirem bókum um kirkju-
menn 18. aldar reist sér mikinn minnisvarða sem sagnaritari
og rutt brautina vel og rækilega þar, sem áður var vegleysa eða
torleiði mikið. Magnús Jónsson.
SÉRA SIGURÐUR GUÐMUNDSSON,
fyrrum prestur í Þoroddsstaðarprestakalli i Suður-Þingeyjar-
lirófastsdæmi, andaðist hér i bænum 12. þ. m. Hans mun nánar
minst síðar i Kirkjuritinu.
EMBÆTTISPRÓF í GUÐFRÆÐI.
Björn Björnsson frá Hnífsdal lauk embættisprófi í guðfræði
með I. einkunn í lok f. m.
ÓÞARFUR DÓMUR.
Próf. Sigurður Nordal flytur nú erindi í útvarpið um lifið og
dauðann. Mun mikið á þau hlýtt og orð slíks manns mikils metin.
Leitt var því að heyra ummæli hans, í 2. erindinu, um prestana
og kirkjuna á íslandi, órökstudd með öllu — ekkert annað en full-
yrðingar. Starfsmenn kirkjunnar munu vafalaust kannast við, að
starf þeirra sé ófullkomið. En er próf. Nordal því svo þaulkunn-
ugur, hvað þar er unnið? Og hvernig má það vera, að hann þekki
andlegar þarfir landsins barná svo miklu betur en prestar landsins
allir? Svona dómur gerir aldrei nema ilt, hann gæti veikt bæði starf
kirkjunnar og tiltrú til annara unnnæla próf. Nordals. M. J.