Kirkjuritið - 01.04.1940, Qupperneq 6

Kirkjuritið - 01.04.1940, Qupperneq 6
124 Magnús .Tónsson: April. gagnvart ríkinu. Og þetta átti meðal annars og sérstaklega að koma fram í stofnun kirkjuþings. í hóp þessara manna var jafn varfærinn maðiír og séra Eiríkur Briem, að ekki sé nefndur nema hann einn. Það var varla hætta á að hann legði með þessu af einhverri nýjungagirni eða án þess að lmgsa málið vandlega. Og ekki hefir verið ýtt á hann l'rá þeim samflokksmönnum hans, sem við völdin voru, því að þetta frumvarp var eitt af því fáa i starfi nefndarinnar, sem stjórnin har ekki fram á Alþingi. Er nú rétt að athuga frumvarpið frá 1900 nokkru nán- ar til þess að bera það saman við þær tillögur, sem nefnd Prestafélagsins bar fram í fyrra, og athuga, livort hafa ætti frekar. I /. grein er ákveðið, að kirkjuþing skuli lialdið þriðja hvert ár. Þar hýst ég við að flestir verði sammála um, að eðlilegra væri, eins og nú er öllu háttað, að þinghaldið væri annaðhvert ár. Heimild skyldi og vera fyrir ráðlierra að kalla kirkjuþing saman fvr en þrjú ár eru liðin. Þingið skal halda í síðari hluta júní og biskup ákveður daginn. Þá er hér mikilsvarðandi atriði, að „synódus, sem nú cr, skal leggjast niður.“ Þetla ákvæði hlýtur maður að undr- ast nokkuð, þegar þess er gætl, að kirkjuþing átli ekki að koma saman nema þriðja hvert ár. Hefði því virzt eðli- legra að ákvæðið væri þannig, að „synódus, sem nú er, skal leggjast niður það ár, sem kirkjuþing er haldið.“ Það hefði áreiðanlega orðið mikill skaði að þessu ákvæði, ef samþykt hefði verið. En þess ber þó að geta hér til skýr- ingar, að synódus var um þessar mundir engan veginn það, sem hún nú er. Hún stóð þá venjulega einn dag og hafðist litið að annað en að afgreiða nokkur mál eftir tillögum biskups. Samt finst manni, að ekki væri ástæða til þess að fella það fundarhald niður nema þá það ár, sem kirkjuþingið átli að koma saman og gat afgreill þessi sömu erindi. 2. gr. er um samkomustaðinn. 3. gr. er alment um verksvið kirkjuþings.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.