Kirkjuritið - 01.04.1940, Page 20
138
Merkileg nýung í safnaðarstarfi.
April.
drotni sínum og hafa fagnaðarerindi lians fyrir mæli-
kvarða á þjóðmálin og stjórnmálin.
Kirkjan, sem játar trú sína á hjálpræðið fyrir Jesú
Krist, lítur hvern mann þeim augum, að hann sé „hróðir-
inn, sem Kristur dó fyrir.“ Hún á því ekki aðeins á friðar-
timum eða ófriðar að biðja fyrir þjóðinni, sem hún starf-
ar hjá, heldur einnig fyrir fjendum hennar. Ef kristnir
menn í löndum, sem eiga í ófriði innbyrðis, vilja hiðja í
anda Krisls, þá munu þeir ekki biðja hverir gegn öðrum.
Kirkjan á í orði, verkum og sakramentum að bera vitni um
það, að Guðs ríki sé veruleiki liátl yfir þjóðaheiminum.
Hún á að kenna og hlýða orði drottins síns: Elskið óvini
vðar. Á. G. Jnjddi.
Merkileg nýung í safnaðarstarfi.
Sóknarpresturinn í Hálsprestakalli í Fnjóskadal, séra Helgi
Sveinsson, hefir fyrir nokkuru siðan hafist handa um nýbreytni
í safnaðarstarfi í prestakalli sínu. Fyrir forgöngu hans hefir
verið stofnað félag með fólki úr þremur sóknum prestakallsins,
Draflastaða- Háls- og Hlugastaðasóknum. Félagið heitir: „Kristi-
legt menningarfélag Fnjósdæla“. Markmið félagsins er: 1) að
afla þessum sóknum úrvalsbóka til eflingar kristilegum áhuga
og menningarlífi. 2) að efna til almennra funda um trú- og sið-
gæðismái. 3) að láta liknarmálin til sin taka, (verða líknarfélag),
Telur félagið nú 150 meðlimi, og hafa þegar nokkurir fundir
verið haldnir og bókakaup verið hafin. Er ánægjulegt að frétta
af þessu nýja starfi og mun margt gott af því leiða í framtíðinni.
Hefir séra Helgi sýnt mikinn dugnað við félagsmyndun þessa,
enda áhugamaður í starfi sínu. Fór hann heim á heimiti safnaða
sinna og ræddi og undirbjó málið. Var erindi hans vel tekið, og
munu söfnuðir hans fagna félagssamtökum þessum og starfi því,
sem hér er hafið. Síðar mun séra Helgi hafa i hyggju að skýra
frá og ræða opinberlega þessa hugmynd sína.
Sigurgeir Sigurð'sson.