Kirkjuritið - 01.04.1940, Blaðsíða 27

Kirkjuritið - 01.04.1940, Blaðsíða 27
Kirkjuritið'. Niels Dael og Lísulundur. 145 stofurnar, sem okkur lízt einkar vcl á. Það leynir sér ekki, að hann er mikill íslandsvinur og veit ótrúlega mikið um Island af manni, sem aldrei hefir þangað komið. Hann minnist komu fslandsbiskups, dr. Jóns Helgasonar, og lyrirlestrahalds lians á Lísulundi fyrir nokkurum- árum nieð miklu þakklæti. Hann telur sér mikla gleði að því að sjá íslendinga á skólanum: Hér eru Danir, Norðmenn og Svíar, en mig vantar Finna og íslendinga. Skóli ininn er °pinn öllum, en einkum Norðurlandabúum. IV. Aður en ég lýsi skólanum og dvöl minni þar, vil ég . minnast æfiatriða þessa merka manns í nokkurum drátl- uni. Niels Dael er fæddur á sveitabæ einum, Suður-Dal á Vendilskaga, nyrzt á Jótlandi, 16. júní 1857. Er þaðan §óð útsýn til Skagerak, en til hafsins beindi sveinninn oft augum sinum i æsku. Á Vendilskaga hefir jafnan búið kjarnafólk, og það levnir sér ekki, að Niels Dael er dálítið upp með sér af þvi að vera Vendilbúi. Ég minnist þess, að cuiu sinni beyrði ég bann spyrja fermingarbörn sín. Við það tækifæri fór liann að segja þeim frá stríðinu 1846, þegar Prússar og Austurríkismenn tóku Suður-Jótland frá l^öiium. Ég man, með hvílíkri hrifningu liann sagði frá 1)VÚ að tvær herdeildir danska Iiersins liefðu verið valdar til að verja meginlierinn á flóttanum. Þær voru skotspænii 0vmaliðsins, „dauðahersveitirnar“, og önnur var frá Áendilskaga. Með tárin í augunum sagði liann börnunum því, að Vendilbúar befðu verið valdir til að vera blífð- arskjöldur danska hersins á flóttanum. Meiri hluti sveitar- uuiar féll, en hún tafði Prússa og Austurríkismenn í 2—3 klukkustundir, meðan meginherinn danski komst undan. Niels Dael var á sjöunda árinu, þegar Danir mistu Suð- ur-Jótland, og fyrstu endurminningar Iians eru frá þeim aruni. Hann man eftir því, er prússneskir og austurrískir 1erir komu alla leið norður á Vendilskaga. Þeir vildu fá

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.