Kirkjuritið - 01.04.1940, Síða 33

Kirkjuritið - 01.04.1940, Síða 33
Kirkjuritið. Sigurjón Guðjónsson: 151 marga vini meðal liáttsettra kirkjunnar manna, þótt frí- safnaðarprestur væri. Ég átti þess kost að vera þrisvar sinnum í kirkju hjá Niels Dael, og eru guðsþjónustur lians mér mjög minnis- stæðar. Það sem einkendi þær var einkum það, live léttur og óþvingaður blær var yfir þeim, og eru þær um margt ólíkar þjóðkirkjuguðsþjónustunum. Það leyndi sér ekki, þegar Niels Dael steig í stólinn, live lionum var það eðli- legt að prédika og hve vel hann kunni við sig í stólnum. Enda sagði hann svo sjálfur frá, að það væri sitt mesta yndi í lífinu að halda ræður. Undir ræðum hans getur maður grátið og lilegið á víxl. Þær ólga af lífi, eða maðurinn, sem flytur þær. Lífsliam- ingjan endurspeglast í svip þessa æruverða öldungs, sem yngist um mörg' ár um leið og liann er stiginn í stólinn. Eg hefi aldrei hlustað á prédikara, sem hefir haft öllu meira lagi á þvi að ná til fólksins en'hann. Það gerir persónuleiki hans og flutningur orðsins meira en ræðan sjálf. Enda fer svo, þegar ræður Niels Dael eru lesnar, að þá eru þær vart hafnar yfir meðallag. — Þrjú smá- prédikanasöfn hefir hann gefið út. En þvi má sízt gleyma, að hann er meira en prédikar- i^n, þegar hann er kominn í kirkju. Það er talið, að altaris- þjónustugerð fari engum presti í Danmörku eins vel úr 5endi og honum. Hefi ég engan jafningja hans séð á þessu sviði, og lijá engum presti notið blessunar altaris- sakramentisins í eins ríkum mæli og honum. Við flestar guðsþjónustur Niels Dael fara fram altaris- göngur, sem næstum því allur söfnuðurinn tekur þátt i. Hafa kunnir menn komið langt að til Höve og Havrebjerg að sjá Niels Dael taka fólk til atlaris. Og frægir mál- ai'ar, eins og t. d. Joachim Skovgaard, er var vinur Dael, Hefir málað frægt málverk af altarisgöngu í Havrebjerg. Sá, sem þelckir Niels Dael, undrar sig ekki á því, þó að hann leggi mikla rækt við altarisgönguna, svo samstill- andi kraftur sem hann er og' svo lifandi veruleiki sem

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.