Kirkjuritið - 01.04.1940, Side 38

Kirkjuritið - 01.04.1940, Side 38
156 Apríl. Kirkjumál á Alþingi. 1. Lang merkasta kirkjulöggjöf jsessa Aljiingis er lögin xun kirkjuskipun í Reykjavík. Hafa frumvörp um jjetta efni hvað eftir annað leg'ið fyrir Alþingi án jjess að fá afgreiðslu. Nú höfðu þeir biskup og séra Friðrik Rafnar, sem eru samkvæmt útniefningu ráðherra að ihuga prestakallaskipun landsins, yfirlitið þetta mál og samið frumvarp jmð, sem fram var borið af mentamálanefnd neðri deildar. Það var siðan samþykt með smábreytingum, sem Gísli Sveinsson alþm. bar fram. Lögin eru á þessa leið: LÖG um afhending dómkirkjunnar til safnaðarins í Reykjavik og skiftingu Reykjavikur í prestaköh. 1. gr. Dómkirkjan i Reykjavik skal afhent dómkirkjusöfnuðinum lil eignar, umráða og afnota með þessum skilyrðum: Ríkið greiði 300 — þrú liundruð — þúsund krónur tii nýrra kirkjubygginga, með 10 þúsund krónum á ári í 30 ár. Ríkið skal liafa eftir sem áður aðgang að dómkirkjunni án sérstaks gjalds. — Fari fyrsta greiðsla fram árið 1945 og siðan árlega. 2. gr. Eftir afhendingu dómkirkjunnar í hendur safnaðarins skai skifta söfnuðinum í 4—6 sóknir. Kirkjustjórnin ákveður takmörk sólcna, eftir tillögum prestakallaskipunarnefndar og kirkjuráðs. 3. gr. Kirkjubyggingar i hinum nýju sóknum annast og kostar söfn- uður hverrar sóknar. Hver sókn fær auk kirkjugjalds frá árs- byrjun þess árs, er greiðslur hefjast, liluta af fé því, er ríkið leggur til kirkjubygginga samkvæmt 1. gr. Greiðist féð í hinn al- menna kirkjusjóð og skiftist jafnt milli nýju sóknanna, eftir að 100000 kr. hafa verið lagðar til fyrirhugaðrar kirkju á Skóla- vörðuhæð. 4. gr. Sóknir þær, er nefndar eru í 2. gr., skulu vera jafnmörg presta- köll, og skulu vera i þeim svo margir prestar, að því svari, að 1 prestur sé fyrir hverja 5000 sóknarmanna. En ef fólkinu fjölg- ar, skal prestum fjölga i hlutfalli við fólksfjölda, þannig, að á hvern prest komi sem næst fimm þúsund manns. Skulu þessi prestaköll vera sérstakt prófastsdæmi með dómprófasti. Ákveður héraðsfundur þess prófastsdæmis, hvernig skifta skuli tillagi ríkissjóðs til kirkjubygginga milli sóknanna.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.