Kirkjuritið - 01.04.1940, Blaðsíða 42
160
Nýtt hirðisbréf.
Apríl.
Fyrsti höfuðkafli bréfsins er um leiðarljósið, Heilaga Ritningu.
I honum gjörir biskupinn mjög hreinskilningslega og einarðlega
grein fyrir trúarskoðunum sínum. Biblían er honum hin mikla
opinberun um Guð, og þó engan veginn jafn háleit öll eða full-
komin, heldur metur hann gildi rita hennar eftir því, að hve miklu
leyti þau „halda Kristi fram“, eins og Lúter komst að orði. Dýrð-
armynd Krists, sonar hins lifanda Guðs, er það, sem alt á að miða
við. Hver geisli Ritningarinnar, sem bendir til hans, er heilagur.
Með lífi sínu og starfi, dauða og upprisu, er Jesús bæði fyrirmynd-
in og frelsarinn, sem leiðir menn að föðurhjarta Guðs. En þangað
á ekki að mrka neitt einstigi trúarlærdómanna. Þeir, sem eiga
Jesú að leiðtoga og frelsara, eru í raun og veru eitt. Þeir sem
gjöra vilja Guðs eru bræður hans og systur.
I öðrum köflum bréfs síns ritar biskupinn aðallega um kristindóm
í verki og kemur með ýmsar leiðbeiningar um prestlegt starf. Heita
kaflarnir: Starf prestsins í kirkju. Bæn. Helgiathafnir. Starf prests-
ins utan kirkju. Kristilegt starf meðal æskulýðsins. Kirkjur og
kirkjugarðar. Ef til vill kann sumum að þykja óþarfi að skrifa
ýtarlega um þcsskonar efni í hirðisbréfi. En í raun og veru liggur
það mjög beint við, og er ekki vafi á því, að margir prestar, ekki
sízt hinir yngri, muni kunna biskupi sérsatklega þakkir fyrir það.
Prestsstarf hans í rúm 20 ár í stórum söfnuði við ágætan orðstír
hefir aflað honum þeirrar reynslu og þekkingar, að hann getur
gefið öðrum mörg og góð heilræði og gjörir það á bróðurlegan
hátt. Heitasta áhugamál hans virðist vera kristilegt starf meðal
æskulýðsins, því að honum er það ljóst, að börn fslands í dag eru
íslenzka þjóðin á morgun.
Niðurlagskafli bréfsins er um kirkjuleg áhrif á þjóðlífið. Nefnir
biskup þar ýms mál, sem framundan séu, og hvetur til einingar
og samtaka. En æðsta verkefnið er: „Að treysta kirkju Krists í
hjörtum íslendinga allra“.
Bréfið er fallegt og ástúðlegt, og mun prestum þykja vænt um
þessa hlýju kveðju. Á. ,G.
Kirkjuritið kemur út 10 sinnum á ári — alla mánuði ársins nema
ágúst og septembermánuð — um 20 arkir alls og kostar kr. 5.00
árgangurinn. Gjalddagi 1. apríl — og 1. okt., ef menn kjósa held-
ur að borga í tvennu lagi. Afgreiðslu og innheimtu annast séra
P. Helgi Hjálmarsson, Hringbraut 144, sími 4776, Reykjavík.