Kirkjuritið - 01.12.1941, Side 31

Kirkjuritið - 01.12.1941, Side 31
Kirkjuritið. Höfuðdrættír í æfi Jesú. 421 inga lians en einmitt þá daga. I framkomu hans gagnvart þeim er engan minsta hilbug á honum að finna i nokkurri grein. Hann kemur þar fram í öllu sem sá, er telur sig eiga vísan sigurinn. Aftur og aftur snýr hann með einu orði vopnin úr höndum þeirra og vörnin snýst upp í harða sókn. Og þó sýna bæði kveldmáltíðar-samkoman síðasta, sem hann heldur með lærisveinum sínum, og þá ekki sízt sálarstríðið í grasgarðinum — hve órótt honum liefir verið hið innra með sjálfum sér. En út á við er hann alt að einu jafn ákveðinn. Hann hikar ekki eitt augnablik í áform- um sínum, því að hann veit sig við hvert fótmál á vegum föðurins og i hans varðveizlu, hvað sem að höndum kunni að bera. Fullkomnari veruleikablæ en er á guðspjalla- sögunni, er hún skýrir frá viðburðum þessara daga, er ekki unt að lmgsa sér. Ekkert skáld hefði getað sett þann blæ á einhvern tilbúning ímyndunaraflsins. Og svo flýgur sú fregn einn morgunmn um box-gina, að Jesús hafi verið tekinn fastur og að dóixiur sé þegar kveðinn upp yfir lxonunx! Pi-estahöfðingjarnir vissu, hvað þeir höfðu gjört. Æsingin með ölluixx almenningi hafði magnast svo þessa síðustu daga, að íxú varð að láta til skarar skríða. Og þegar svo spurðist, hversxi koixiið væri fyrir Jesú, xxrðxx skjót veðrabrigði í hugxxnx manna. Gyð- ingar gátu íxieð engxx liugsanlegu xxxóti sanxrímt í liuga sínuni lxandtöku Jesú og Messíasartign hans. Ef hann liefði verið sá, er hann sagðist vera, hefði Guð afstýrt öðru eins og því, að Jesús yrði tekinn lxöndum. Með handtökunni þótti öllum alnxenningi sýnt og sannað, að Jesús væri einhver Svika-Messías, og því ætti hann ekki neina vægð skilið. Hér skal nú ekki frekar dvalið við einstök atvik handtökunnar og réttarhaldsins, sem öllum eru kunn. Aðeins skal það tekið franx, að Jesús er dænxdur fyrir það, að hann gerir til hins síðasta beint tilkall til Messíasai’- tignar. Hann sagðist vera „Guðs sonurinn!“ Það var sökin mesta og á þeirri sök var liann feldur. Og tæpum 18 tím- um eftir liandtökuna liangir liann sem andvana lík á ki-ossi

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.