Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 20

Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 20
Varnarrceða Tertúllians. Þegar liðið var fram um miðja aðra öld eftir voru tímatali, var kristindómurinn farinn að ryðja sér svo mjög til rúms í rómverska ríkinu, að það var orðið reglu- legt vandamál fyrir yfirvöldin, hversu með skyldi fara. Enda þótt Rómverjar væru yfirleitt umburðarlyndir 1 trúmálum eins og gerist og gengur um yfirráðaþjóðir og engir ofstækismenn í þeim sökum sjálfir, þá gat alls ekki hjá því farið, að kristnir menn lentu á öndverðum meið við ýms lög og fyrirmæli, sem brutu í bága við eingyð- ishugmyndir þeirra. Gerðu þeir það að sáluhjálparsök, að stíga þar út af vegi réttlætisins, sem aðrir sáu aðeins meinlausa venju, er engum gerði mein, ef hann hélt sinn einkaátrúnað í hjarta sínu. Siðgæðiskröfur kristindóms- ins voru að þessu leyti hærri en flestra annarra trúar- bragða á yfirráðasvæði Rómverja, og mátti þó segja, að þar ægði saman mörgum sundurleitum trúarskoð- unum. En það, sem mest varð til ásteytingar, var keisara- dýrkunin. Kristnum mönnum, og reyndar Gyðingum líka, var það mikil viðurstyggð, að veita keisaranum guðlega lotningu, og þótti þeim það hin hræðilegasta guðlöstun. Hefir þetta sennilega verið af rómverska ríkinu hugsað sem stjómmálabrella, til að styrkja einingu ríkisins, og því verið strangar eftir því litið en ella mundi. Allir þeir, sem ekki fengust til að hlíta þessum fyrirmælum, voru því að sjálfsögðu tortryggðir sem fjandmenn ríkisins og á þá litið sem drottinssvika. Má þá og nærri geta, hverju múgheimskan hefir fengið áorkað í því, að afflytja hina kristnu trúarflokka og skapa andúð gegn þeim bæði fyrir hleypidóma og upplognar sakir.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.