Kirkjuritið - 01.01.1949, Qupperneq 27
VARNARRÆÐA TERTÚLLIANS 25
móður? Gætuð þér gert nokkuð þvílíkt? Eða haldið þér,
að vér kristnir menn séum annars eðlis en þér og vér
séum skapaðar mannætur, vér höfum krókódílatennur
°g úlfsmaga?
En nú skal ég segja yður, hvers vegna þér getið trúað
þessari fjarstæðu um oss kristna menn. Það er af því,
að dálítið svipað hefir verið framið, ekki af oss, heldur
einmitt af yður. Allt fram á daga Tiberiusar var guðin-
inum Satúrnusi fórnað börnum í Afríku, og hengdu her-
niennirnir þau á trjágreinarnar og stóðu vörð yfir. Þeir
geta vitnað um þetta. I Gallíu var gamalmennum fórnað
á altari Merkúríusar. Og jafnvel í höfuðborginni Róm
er líknesja hins hæsta guðs, Júpíters, þvegin ár hvert í
mannsblóði. Já, svei, segið þið: Þetta er ekki nema blóð
gladiatoranna! En það er nú mannablóð samt sem áður,
og ekki verður Júpiter betri við það, þó hann sé þveginn
upp úr blóði vondra manna.
Nei, vér drepum ekki böm, en þér drepið þau, svo sem
öllum er kunnugt. Nýfæddum börnum varpið þér í vatnið
eða berið þau út, svo að þau svelta í hel eða eru etin
UPP af hundum. Oss er bannað að fremja morð. Vér
fremjum ekki einu sinni fóstureyðingar, en hvað gerið
þér? Vér etum ekki menn, hvorki böm né fullorðna. En
þér etið kjöt af villidýrum, sem í kappleikjunum hafa
rifið í sig mannakjöt. Hvernig ættum vér að eta manna-
blóð, þar sem vér jafnvel forðumst að neyta dýrablóðs.
Nei, góðir hálsar! Ég skal kenna yður gott ráð. Þér
eruð vanir því að prófa, hvort vér emm kristnir, með
því að skipa oss að fórna reykelsi frammi fyrir líkneski
keisarans. Ef vér neitum því, þá erum vér taldir kristnir.
Væri ekki reynadi að fremja þetta próf á þann hátt, að
skipa oss að drekka mannablóð, og láta það svo gilda
sem sönnun, ef vér gerðum þetta með góðri lyst?
Hvað nú ólifnaðinn snertir, þá munuð þér einnig vera
sekari þar en vér. Vér höfum ástundað skírlífi í öllum