Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1949, Page 29

Kirkjuritið - 01.01.1949, Page 29
VARNARRÆÐA TERTÚLLIANS 27 »Hvert er eðli Krists? Guð hefir skapað allan heiminn með orði sínu, hugsun sinni og mætti. Jafnvel spekingar yðar eru ásáttir um, að heimurinn sé skapaður af Logos, sem þýðir bæði orðið og hugsunin. Þetta er einmitt það, sem vér einnig kennum. Þér segið, að Logos sé andi og Guð sé andi. Vér köllum Logos bæði Guðsson og Guð. Þetta má skýra með líkingu: Þegar sólargeisli stafar út frá sólinni, þá er hann hluti af sólinni. Sólin sjálf er í sólargeislanum, af þvi hann gengur út frá henni. Þrátt fyrir það greinist sólin ekki í sundur, enda þótt hún geisli. Hún stækkar aðeins. Þannig er Kristur andi af anda, og Guð af Guði, alveg eins og ljós kveikist af ljósi. Af þvi að hann er útgenginn frá Guði, er hann Guð og Guðssonur °g báðir eru einn Guð.“ Tertúllianus lætur þá trú i ljós, að andar, eða demonar, bæði illir og góðir, séu hvarvetna á sveimi og einkum þó illir. Þeir vinni mönnum hverskonar tjón, blandi loft allt lævi, orsaki sjúkdóma, reiði og brjálsemi, og kveiki upp i mönnum illar girndir. Þeir geti komizt á snoðir um margt og þannig gert sig að guðum í augum fávísra manna. Þannig sé til komin hjáguðadýrkun heiðinna Þjóða. En allir þessir demónar séu þó Kristi undirgefnir. Býður hann að sækja hvaða kristinn mann sem sé og láta hann reka út slíka anda. Þeir þurfi ekki nema snerta á þeim, sem haldinn sé af illum anda eða blása á hann, þá fari andinn út af honum, vegna þess, að hann skelfist Krist og þann eilífa eld, sem hann geti refsað andanum með. Jafnvel megi fá hina illu anda til að játa sannleik- ann, og þykir þeim það þó allra verst. Viðvíkjandi keisaradýrkuninni segir Tertúllianus, að það sé satt, að kristnir menn fáist eigi til að færa keis- aranum fórnir né biðja til hans. En þeir biðja fyrir honum. Því að kristnir menn biðja jafnvel fyrir óvinum sínum. Kristnir menn biðja aðeins til hins eilífa Guðs, hins sanna og lifandi Guðs. Og þeir biðja óaflátanlega fyrir keisaranum, langlífi hans, góðri landsstjórn, ham-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.