Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1949, Page 30

Kirkjuritið - 01.01.1949, Page 30
28 KIRKJURITIÐ ingjusömu heimilislífi, hraustum her, trúum ráðherrum, heiðarlegum þegnum, friði í ríkinu og hverju því öðru, sem þjóðin og keisarinn getur frekast óskað. Ekki færum við Guði að fórn nokkur reykelsiskorn, keypt fyrir fáeina skildinga, nokkra dropa vins eða blóð af gömlum uxa, eins og þér gerið ásamt yðar óhreinu samvizku. Vér fær- um oss sjálfa Guði að fórn, og flytjum fram bæn vora af einlægum huga og hreinni sál. — Svo getið þér komið með járnklær til að rífa oss á hol, krossfest oss, brennt oss, hálshöggvið oss eða sigað á oss villidýrum. Vér stöndum hógværir og breiðum út hendurnar í bæn til Guðs! Þér getið gert við oss það, sem yður sýnist. En þegar þér, auðsveipir þjónar keisarans, hafið stigið yfir höfuð vor, skylduð það þá vera þér, sem biðjið einlæg- lega fyrir keisaranum?“ „Nú skal ég segja ykkur blátt áfram, hvemig vér kristnir menn skemmtum oss, er vér komum saman: Vér styrkjum trú vora við lestur Heilagrar ritningar, og upp- byggjum siðgæði vort við að hlusta á hin heilögu boðorð. Forsetar á þessum samkomum eru öldungarnir. Þeir hafa ekki goldið fyrir þennan heiður og ekki er þeim goldið fyrir hann, því að ekkert fæst fyrir borgun hjá Guði. Vér höfum sameiginlegan sjóð. Hver og einn leggur í hann tillag sitt á ákveðnum degi mánaðarins, eða þegar hann getur eða vill. Enginn er tilneyddur að gefa, allt er lagt fram af fúsum vilja. Fé þetta er ekki notað til samkvæmishalda, í drykkjuveizlur eða ofát, heldur er því varið til fátækraframfæris, til að sjá um foreldra- laus börn, til að ala önn fyrir gömlu fólki og farlama, eða skipbrotsmönnum. Og ef einhver af oss er dæmdur fyrir trú sína til þrældóms í námum eða á eyðieyjum eða í fangelsum, þá hugsum vér líka um þá. Einmitt þetta blæðir mörgum í augum. Þér hrópið: Sjáið, hversu þeir elska hver annan! Því að þér hatið hver annan. Sjáið, hversu þeir eru reiðubúnir að deyja

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.