Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 31
VARNARRÆÐA TERTÚLLIANS 29
hver fyrir annan, því að sjálfir eruð þér reiðubúnir að
drepa hver annan! Þér hæðist að því, að vér nefnum
hvert annað bræður og systur. En vissulega erum vér
betri bræður og systur en þér, sem eruð það eftir hold-
inu. Vér erum með einum huga og einni sál og eigum allt
sameiginlegt, nema konur vorar.“
,,Samkomur vorar eru í sannleika friðarsamkomur, og
Þó á allt illt að vera oss að kenna. Komi vöxtur í Tíber-
fljót, svo að það flæðir út yfir bakka sína, eða ef Níl
vex ekki á tilsettum tíma, eða ef þurrkur eða jarðskjálfti
kemur, hungursneyð eða drepsótt, þá er hrópað: Fleygiö
lcristnuni mönnum fyrir Ijónin! En undarlegt er þó það,
að lík óhöpp skeðu fyrir daga kristninnar."
,,Ýmsir segja, að heimspekingarnir kenni hið sama og
kristnir menn: hreinleika, þolgæði og réttlæti. En mun-
ur er á heimspekingum og kristnum mönnum, það vitið
þér vel. Ella munduð þér fara eins með heimspekingana
°g oss. Heimspekingarnir fá að lifa og láta eins og þeir
vilja. Þeir skrifa móti guðunum, þeir standa uppi í hár-
inu á keisaranum, en enginn neyðir þá til að færa reyk-
elsisfórn. Hversvegna? Af því, að fyrir þeim er þetta leikara-
skapur einber. Ekki reka þeir brottu illa anda. Þeir eru
fúsir að rökræða um sannleikann og masa um hann fram
°g aftur, en kæra sig ekki um að lifa eftir honum. Aftur
á móti leita kristnir menn sannleikans, af því að samvizkan
knýr þá til þess, þeir þrá frelsi. Það er heldur ekki satt,
að heimspekingarnir kenni og ástundi sömu dyggðir og
kristnir menn. Mestu heimspekingar hafa lifað í löstum
og ólifnaði. Að vísu hafa sumir þeirra reynt að berjast
gegn löstunum. Diogenes bjó í tunnu og bað Alexander
þess eins, að hann færi frá sólinni. Og þegar hann var
boðinn í hús Platons ríka, tróð hann dýrindis sófapúða
undir skitnum fótunum. En ber þetta ekki miklu fremur
vott um, að Diogenes þessi var við að springa af ofmetn-
aði? Kristnir menn auðsýna hins vegar hvorki dramb rík-