Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 35
VARNARRÆÐA TERTÚLLIANS 33
úr flokki þeirra. Er talið, að hann hafi andast árið 222.
Hann hefir löngum verið talinn mestur rithöfundur fom-
kirkjunnar, annar en Ágústínus, og hafði geysivíðtæk
áhrif á guðfræðilegar hugmyndir hennar. Jafn-strangur
kirkjuhöfðingi og Cyprianus biskup, eftirmaður hans í
Karthago, mat hann umfram alla aðra og komst jafnan
svo að orði, þegar úskurðar þurfti um trúarleg efni.:
Sækið meistarann, og vom þá rit Tertúllianusar sótt.
Þessir tímar sýnast nú fjarlægir, og þær ásakanir á
hendur kristnum mönnum, sem trúvarnarmenn eins og
Tertúllianus urðu við að berjast, miklar fjarstæður. En
onnþá fram á vora daga hafa kristnir menn átt við of-
sóknir að búa og enn eru fjarstæðukenndar ásakanir
bornar á þá, og þeir taldir óvinir ríkisins af ýmsum, þótt
ekki sé þeim lengur dreift við barnaát.
Kristindómurinn þarf því ennþá á að halda skeleggum
og rökfimum trúvarnarmönnum, sem eins og Tertúllianus
óttast ekkert vald á jörðu, en hafa djörfung og vit til að
verja þann málstað, sem reyndar er auðveldast að verja:
málstaö sanrileikans.
Hvenær, sem það er gert; verður Tertúllianusar minnzt
sem einhvers vaskasta hundraðshöfðingja hinnar stríðandi
kirkju.
Benjamín Kristjánsson.
3