Kirkjuritið - 01.01.1949, Blaðsíða 45
SÉRA EINAR THORLACIUS
43
biskups var Steinunn dóttir Guðbrands biskups Þorláks-
sonar. Séra Einar Thorlacius í Saurbæ átti Margréti Jóns-
dóttur prests hins lærða í Möðrufelli og Dunhaga Jóns-
sonar, en systur Margrétar, Álfheiði Jónsdóttur lærða
átti séra Hálfdan Einarsson á Eyri í Skutulsfirði og víðar,
faðir séra Helga lectors. Jón biskup Helgason og séra
Einar Thorlacius voru því þremenningar. — Móðir séra
Einars var Rósa Jónsdóttir bónda í Leyningi í Eyjafirði
Ejarnasonar. — Séra Einar átti aðeins tvö systkini: Al-
bróður Jón Thorlacius bónda á öxnafelli, er átti mörg
börn og þeirra á meðal frú Margréti í öxnafelli, sem er
landskunn kona. Hálfsystur átti séra Einar Ólöfu, konu
Þórarins Jónssonar kennara, eignuðust þau mörg börn
°g þar á meðal Vilhjálm Þór forstjóra.
Séra Einar gekk inn í Lærða- skólann 1881 og lauk það-
an stúdentsprófi 1887. Um haustið sama ár gekk hann á
Prestaskólann og útskrifaðist þaðan 1889. Hinn 29. sept.
s. á. var hann vígður af Hallgrími biskupi Sveinssyni til
Stóruvallaþinga á Landi og þjónaði hann því prestakalli
til aldamótanna. Sama haustið og séra Einar vígðist, kvong-
aðist hann, 8. okt., heitmey sinni Jóhönnu Aðalbjörgu
Benjamínsdóttur frá Stokkahlöðum í Eyjafirði, alsystur
Magnúsar heit. Benjamínssonar úrsmiðs í Reykjavík.
Fluttu ungu hjónin þegar austur í prestakall séra Einars
og voru hinn fyrsta vetur til heimilis hjá merkisbónd-
anum Eyjólfi í Hvammi á Landi. Vorið eftir, 1890, hófu
þau búskap á prestssetrinu Skarði, en bjuggu þar aðeins
í 4 ár, til vors 1894. Þá var jörðin orðin svo skemmd af
sandfoki að þeim þótti ekki lifvænlegt að búa þar lengur.
Séra Einar fékk því áorkað við kirkjustjórnina, að Fells-
múli var gerður að prestssetri, og fluttu þau þangað. Þar
byrjuðu þau með að byggja allgóðan torfbæ, en hann
hrundi í landskjálftunum miklu 1896, eftir 2 ár, og reistu
þau þá timburhús á staðnum. Veturinn 1900 sótti séra
Einar um Saurbæjarprestakall á Hvalfjarðarströnd. Hann
var kosinn þar löglegri kosningu og fékk veitingu fyrir