Kirkjuritið - 01.01.1949, Qupperneq 46
44
KIRKJURITIÐ
prestakallinu 21. maí. Þar var hann prestur í 32 ár og
auk þess prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá 1.
júní 1921 til 17. ágúst 1931. Séra Einar fékk lausn frá
embætti 1932 og flutti þá með konu sinni hingað til
Reykjavíkur, en hún hafði verið mjög heilsuveil um mörg
ár og var það aðallega vegna vanheilsu hennar, að hann
flutti hingað og lét af prestsskap 68 ára gamall. Hann
gat hér fengið henni betri hjúkrunar, en heilsubót fékk
hún ekki og andaðist eftir tæpra 5 ára dvöl hér, oft
sárþjáð, hinn 21. marz 1937. Hér vann séra Einar að skrif-
stofustörfum í 8 ár hjá syni sínum Magnúsi Thorlacius
hrlm. og hélt uppi heimili fyrir konu og börn. Hann
gegndi prestsþjónustu á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
um 2 ára skeið. Auk þess fékkst hann nokkuð við ritstörf
og sá um útgáfu kvæðabókarinnar Snótar 1945.
Á prestsskaparárum sínum samdi séra Einar ýmsar
ritgerðir í blöð og tímarit. Hann var sæmdur riddarakrossi
Fálkaorðunnar 11. okt. 1945.
Séra Einar var þjónandi prestur í 42^ ár og þar af
prófastur í 10 ár. öll prestsleg þjónusta þótti honum fara
prýðilega úr hendi. Hann var tígulegur fyrir altari, tón
hans viðfelldið og ræðuflutningur í stól ágætur, prédik-
anir hans „skipulegar og athyglisverðar." Frágangur
allur á embættisbókum, skýrslum og skjölum, er hann
lét frá sér fara, var frábærlega snyrtilegur og rithöndin
falleg og henni hélt hann til dauðadags, eins og sjá má
af fundargerð, er hann ritaði 3—4 dögum áður en hann
lagðist banaleguna. Hann var samvizkusamur embættis-
maður og mjög áhugasamur um kirkjuleg málefni. Þann
sið tók hann upp, er hann varð prófastur, að bjóða sóknar-
prestum prófastsdæmisins heim til sin einu sinni á ári
til sameiginlegra viðræðna um kirkjuleg málefni. Voru
slíkir prestafundir nýlunda á þeim árum áður en presta-
félagsdeildirnar mynduðust. Hallgrímsdeildin var stofn-
uð um það leyti sem hann var að flytja til Reykjavíkur
og var hann einn af stofnendum hennar og sótti fundi