Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 53

Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 53
UM KIRKJUAGANN 51 er andlegur. Andlegur maður er hinn vígði maður, einn af clerus. Fá vopn hafa verið skæðari en þetta. Um leið og biskups- valdið eykst í kristninni ber meira á banninu, og loks er Það álitið vera svo vandmeðfarið, og er það rétt, að það megi einungis vera í höndum biskups. Hann er kennari safnaðarins. Hann stjómar kvöldmáltíðarathöfninni og getur vísað mönnum frá henni um tíma eða jafnvel að fullu og öllu með tilvísun til lyklavaldsins, Matt. 16, 18. Sé biskup hins vegar brotlegur, verður almennur fundur að bannfæra hann í krafti Heilags anda. Þetta vald bisk- uPsins þróast og breytist eftir því, sem páfavaldið verður sterkara, og loks stendur í búllunni Unam Sanctam, sem Bönifacius 8. gefur út hinn 18. nóv. 1302: Ennfremur lýsum vér yfir því, segjum og ákveðum, að yfirleitt sé Það sáluhjálparatriði fyrir sérhverja mannveru að vera hinum rómverska páfa undirgefin. — Kirkjan er þá allt 1 öllu og þolir ekki, að nokkur brjóti á móti henni. Sá, sem það gerir, sá sem óhlýðnast páfa, boðum hans eða fulltrúa hans, biskupanna, er fallinn í bann, útilokaður frá samfélagi heilagra. Auðvitað kom til þess hér á landi, að menn settu sig UPP á móti boðum kirkjunnar og biskupsins. Islendingai- hafa löngum þótt sjálfstæðir nokkuð og óstýrilátir. Dæmi væri hægt að nefna mörg. En hér verða aðeins tekin tvö Ur kaþólskum sið, sem sýna að nokkru leyti, hvernig að var farið að setja menn í bann skvt. hinum kanóníska rétti og fyrir hvaða sakir. Annað dæmið er frá 20. desember 1474, bannsetningar- bréf Jóns officialis Broddasonar yfir Solveigu Þorleifs- dóttur: Það gjörir ég, Jón prestur Broddason, officialis generalis vicarius Hólabiskupsdæmis, góðum mönnum viturlegt með hessu mínu bréfi, að sakir þess, að þú, Solveig Þorleifs- dóttir, hefir nú lengi verið í óhlýðni og þrjózku við Guð, Heilaga kirkju og mig.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.