Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 54
52
KIRKJURITIÐ
Fyrst í því, að þú hefir haldið séra Sigmund Steinþórs-
son, síðan hann var úrskurðaður í bann fallinn af sjálfum
biskupnum fyrir þær sakir, sem biskupinn kærði til nefnds
séra Sigmundar, og þar um gjör bréf votta.
1 annari grein forboðaði biskup hann og útsetti af Heil-
agri kirkju og samneyti kristinna manna. Skeyttir þú
hér um hvorki hans banni né forboði utan hélt, sam-
neyttir og styrktir greindan Sigmund prest í fullu for-
þroti móti rétti Heilagrar kirkju.
1 þriðju grein gefur ég þér, Solveig Þorleifsdóttir, fulla
ráðasök, að þú hafir í burt flutt og látið flytja Mikla-
bæjarstaðarpeninga fríða og ófríða og látið nytja þá í
engu mínu frelsi, heldur í fullu forboði.
I fjórðu grein sór séra Hallur Jónsson fullan bókareið,
að þú, Solveig Þorleifsdóttir, hefðir ryskað sér og tekið
af sér bréfin þau, sem hann fór með og byrjaði að lesa í
kirkjunni í Flatatungu sunnudaginn næsta fyrir Marteins-
messu nú næst, er var. Item sór og Þorsteinn Guðleiksson
fullan bókareið, að hann hefði séð uppá á sama sunnudag,
sem fyrr segir, að þú, Solveig Þorleifsdóttir, dróst og
tókst af séra Halli Jónssyni utan hans vilja fyrrnefnd
bréf í kirkjunni í Flatatungu. Hefir þú og, oftnefnd Solveig
Þorleifsdóttir, það sýnilegt gjört með ráðum, styrk og fullu
verki, að Heilagrar kirkju rétt og fríheit skyldir þú full-
komlega forsmá og fóttroða með mörgum þínum ógjörn-
ingum.
Item hefir ég þetta umborið hér til og það þeinkt, að
þú myndir vilja ganga til sáttar og hlýðni við Guð, Heilaga
kirkju og mig. En þú hefir heldur harðnað og þrjózkazt
í hverju í móti Guðs rétti og Heilagri kirkju. Því ber mér
nú á Guðs vegna og Heilagrar kirkju að fylgja og fram
fara móti þér með rétti og stríði Heilagrar kirkju, eftir
því sem tilheyrir þrjózkum og þrályndum og illskufullum.
Fyrir þessar sakir fyrrskrifaðar og aðrar fleiri þær,
sem ég kann með lögum til þín að tala, set ég þig, áður-
nefnd Solveig Þorleifsdóttir, útaf Heilagri kirkju og öll-