Kirkjuritið - 01.01.1949, Qupperneq 55
UM KIRKJUAGANN
53
Uia hennar sacramentis og af öllu samneyti kristinna
^ianna, fyrirbjóðum vér hverjum presti að syngja eður lesa
yfir þér, Solveig Þorleifsdóttir, eður þér nokkura Guðs
þjónustu að veita þar til, sem þú gengur til hlýðni við
Guð, Heilaga kirkju og mig.
Og til sanninda hér um læt ég, officialatus, innsigli fyrir
þetta bréf. Skrifað í Geldingaholti í Skagafirði. In vigilis
Thome apostoli. Anno Domini MCDLXX quarto. —
Séra Jón Broddason gat sem officialis gefið út þetta
^réf, en ekki sem prestur. Tildrög þessa máls voru þau,
að Ólafur biskup Rögnvaldsson hafði tekið staðinn af séra
Sigmundi Steinþórssyni, föður Jón Sigmundssonar lög-
rnanns, en fengið hann í hendur séra Jóni. Að vísu hafði
það verið gert með nokkrum rétti, en lengi eimdi eftir
af þessum málarekstri svo sem kunnugt er.
Hitt dæmið, sem tilfært verður, er frá 2. janúar 1549,
bannfæringarbréf Jóns biskups Arasonar yfir Daða i
Snóksdal:
Vér Jón, með Guðs Náð biskup að Hólum, Administrator
Skálholts biskupsdæmis í biskuplegu valdi, gjörum öllum
^iönnum kunnugt, að fyrir þær sjö sakir, sem Daði Guð-
ftiundsson hefur gjört og fellt á sig bann fyrir sérhverja
þessa sök.
1 fyrstu grein, að hann var flokksforingi með stjórn
°g styrking með þeim hermannaflokki, sem stóð með
vopnum og verjum i kirkjugarðinum í Skálholti í almenni-
legri prestastefnu og hindraði mig svo, að ég mátti ekki
inn ganga í kirkjuna að gjöra þar biskuplegt embætti sem
ég tilbauð mig, og ég var tilskyldur að lögum.
í annari gerin, að Daði Guðmundsson hefur innsett sig
í Heilagrar kirkju vald og prófastdæmi í móti lögum.
1 þriðju grein, að hann sundurreif mitt innsiglað boð-
unarbrét í kirkjugarðinum í Hvammi og sleit það úr
höndum vors prests Ólafs Semingssonar.
1 fjórðu grein, að Daði Guðmundsson hefur gjört hjú-
skaparband með Guðrúnu Einarsdóttur og verið ásamt