Kirkjuritið - 01.01.1949, Page 57
UM KIRKJUAGANN
55
kirkju og kennimenn segja og syngja um allan kristindóm-
með bann og bölvan yfir alla þá menn, sem ei vilja
sínar syndir af láta og yfirbæta. Þessu sama bannsáfelli
lýsum vér yfir og á leggjum yfir alla þá menn, sem hér
eftir styrkja eður nokkuð samlag hafa við Daða Guð-
mundsson. Og því biðjum vér cilla góða menn um að áfýsa
hann að ganga til hlýðni og lausnar við löglegan for-
mann Heilagrar kirkju og að fráskilja sig gjörðum glæp-
um og bæta sagðar sektir að lögum. Voru þessi öll áðursögð
°rð og embættisgjörð af mér lesin og upp sögð í Heilagri
Hóla Dómkirkju níunda dag Jóla mörgum almúga nær-
verandi, sem vorir prestar vitni um bera í meðfylgjandi
bréfi undir vort signetum.
Það gjörum vér Sturla Einarsson, ráðsmann Hóla
Dómkirkju, Þorsteinn Gunnarsson, kirkjuprestur sama
staðar, Magnús Guðmimdsson, Guðmundur Björnsson,
Páll Brandsson, Jón Brandsson, Hallur Ásgrímsson, Andrés
Ásgrímsson, Grettir Þorvaldsson, Ormur Jónsson, Sigfús
Guðmundsson, Jón Sæmundsson, Jón Sigurðsson, prestar
góðum mönnum kunnugt með þessu voru opnu bréfi: Ár-
um eftir Guðs burð 1549 í Dómkirkjunni á Hólum í Hjalta-
óal á níunda dag í Jólum vorum vér íhjá, að biskup Jón,
er þá var administrator yfir Skálholts biskupsdæmi að
Guðs náð tilkallaðri, las hann fram og sagði svohljóðandi
orð, sem hér fyrr skrifuð standa, að tillögðum mörgum
fleirum bannsetningarorðum og embætti með sálmasöng
og hringdum klukkum og steyptum logum. Og til sann-
inda og samþykktar hér um setjum vér fyrirskrifaðir prest-
ar vor innsigli fyrir þetta bréf, er gjört var í sama stað,
degi og ári, sem fyrr segir. —
Að vísu eru langar tilvitnanir leiðigjam lestur, en í
þessum tveimur bréfum má sjá einar 10—12 yfirsjónir
af þeim sextán, sem Kristinréttur Árnabiskups gerir ráð
fyrir, að varði bannsetningu. Auk þessa sést, hversu þol-
inmóð kirkjustjórnin var. Aldrei mátti færa mann í hið
meira bann nema að undangengnum 3 áminningum, og