Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 69

Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 69
TRÚÐUR VORRAR FRÚAR 67 ræða. Þá sá hann á veginum munk, sem fór sömu leið °g hann, og heilsaði honum kurteislega. Þeir urðu sam- ferða og fóru að tala saman. —Félagi, sagði munkurinn, af hverju ertu grænklædd- ur? Þú munt ætla að leika fíflið í einhverjum helgileik? — Nei, engan veginn, virðulegi faðir, svaraði Barnabas. Ég heiti Barnabas, og að stétt og stöðu er ég trúður. ^að væri ágætasta stétt í heimi, ef maður fengi að borða á hverjum degi. —Góði Barnabas, sagði munkurinn, gætið að, hvað Þár segið. Það er ekki til í heiminum nein ágætari stétt en að vera munkur. Við lofum og prísum Guð, Maríu mey °g helga menn, og líf munksins er stöðug lofgjörð um Grottin vorn. Barnabas svaraði: — Virðulegi faðir, ég játa, að ég hefi talað eins og fávís maður. Það er ekki hægt að bera saman mína stétt og yðar; og þó að nokkrir verðleikar séu í því að geta dansað ^ueð staf á nefbroddinum og pening á stafsendanum, án bess þeir fari úr jafnvægi, þá er það smátt hjá verðleikum ykkar. Ósköp vildi ég, faðir, mega syngja tíðir á hverjum áegi eins og þið, einkanlega þó tíðir heilagrar Maríu, sem ág hefi heitið sérstakri dýrkun. Ef ég gæti orðið munkur, mundi ég fúslega snúa baki við list minni, sem ég hef hlotið frægð af allt frá Soisson til Beauvais, í meir en sex hundruð borgum og þorpum. Munkurinn var snortinn af einfeldni leikarans; hann skorti ekki dómgreind og hann skildi, að Barnabas var einn þeirra manna, sem hafa góðan vilja og Drottinn vor sagði um: „Friður sé með þeim á jörðunni.“ Þess vegna svaraði hann: •— Barnabas minn góður, komið með mér, ég skal taka yður í klaustrið mitt, því að ég er ábótinn. Sá sem leiddi Maríu hina egypzku út í eyðimörkina, hefir látið okkur hittast til að leiða yður á veg hjálpræðisins. Á þennan hátt varð Barnabas munkur. 1 klaustrinu

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.