Kirkjuritið - 01.01.1949, Side 74
Stýr minni tungu,
„En ég segi yður: Sérhvert ónytjuorð, það er mennirnir
mæla, fyrir það skulu þeir á dómsdegi reikning lúka; því
að af orðum þínum muntu verða réttlættur, og af orðum
þínum muntu verða sakfelldur."
Prestur nokkur erlendur átti einu sinni að prédika
út af þessum orðum, og segir svo frá síðar: „Ég var lengi
að velta þessum orðum Jesú fyrir mér. Að síðustu komst
ég að þeirri niðurstöðu, að ég gæti ekki prédikað út af
þeim; um ofmælgissyndina væri ég jafnsekur, ef ekki sek-
ari, heldur en þeir, sem ég ætti að prédika fyrir. Náðar-
gáfa málsins væri misnotuð af öllum, ónytjuorð, fleiri og
færri, töluðu allir. Og þá datt mér í hug, að fróðlegt væri
að rannsaka á sjálfum mér, hvað ég á einum degi talaði
mikið fram yfir þarfir. Ég réði til mín hraðritara og lét
hann rita upp eftir mér hvert einasta orð, sem ég sagði
einn daginn, frá því að ég vaknaði, og þangað til ég lagð-
ist til hvíldar um kvöldið. Nokkru seinna fékk ég svo
hreinritað afrit af þessu, og las það yfir. Fram að þeim
degi hafði ég álitið sjálfan mig orðvaran mann og fremur
fámálugan. En mér brá í brún, þegar ég sá, hvað eins
dags tai mitt var mikið mál, og hvað mikið af því var
gjörsamlega óþarft, vanhugsað og jafnvel skaðlegt. Og
þá varð mér að orði: „Guð minn almáttugur hjálpi mér,
ef ég á að bera ábyrgð alls þessa fyrir hvern dag ævi
minnar, ef þetta er aðeins fyrir einn þeirra.“
Þannig segist prestinum frá. En hafið þér nokkurn
tíma hugsað yður þann mögleika, að þér sæjuð saman-
safnað á einum stað allt það, sem þér hafið talað, segjum