Kirkjuritið - 01.09.1949, Blaðsíða 55
PRESTASTEFNAN 1949
213
frá prestsstarfinu, og hefir verið veitt hún frá fardögum
þessa árs að telja.
Það er sannarlega eftirsjá að svo ágætum manni úr stétt-
inni, en bót er það í máli, að hann heldur áfram að helga
krafta sína kirkju og kristindómsmálum.
Tveir guðfræðikandídatar hafa vígzt á árinu og bætzt í
hóp hinna þjónandi presta:
Séra Andrés Ólafsson vígður til Staðar í Steingrímsfirði sem
settur prestur þar hinn 11. júlí s. 1.
Séra Andrés er fæddur á ísafirði 22. ágúst 1921. Hann
lauk stúdentsprófi á Akureyri vorið 1942, settist í guðfræði-
deild Háskólans þá um haustið og lauk embættisprófi vorið
1947.
Séra Þórarinn Jónasson Þór vígðist sama dag (11. júlí)
sem prestur í Staðarprestakalli á Reykjanesi, en hefir setið á
Reykhólum, þar sem prestssetrið er nú flutt þangað.
Séra Þórarinn er fæddur á Akureyri 13. okt. 1921 og lauk
þar stúdentsprófi 1943. Embættispróf í guðfræði við Háskólann
tók hann vorið 1948.
Þessa nýju starfsbræður býð ég hjartanlega velkomna í
stéttina og árna þeim heilla og blessunar Guðs í framtíðar-
starfi þeirra í þjónustu kirkjunnar.
I síðustu skýrslu minni minntist ég prestaskipta íslenzku
kirkjunnar og Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Séra
Eiríkur Brynjólfsson, sem héðan fór að heiman, kom aftur
s- 1. sumar. Vil ég sérstaklega þakka honum ágætt starf hans
vestra og ágæta framkomu sem fulltrúi íslenzku kirkjunnar
°g vil endurtaka þakkir mínar til séra Valdimars J. Eylands.
fyrir dvöl hans og starf hér.
Á liðnu sýnódusári hafa orðið mjög litlar breytingar, að
því er varðar embættaveitingar. Aðeins tveir prestar hafa
fengið veitingu fyrir prestaköllum:
!• Séra Kristján Bjarnason, settur prestur í Svalbarðs-
þingaprestakalli, fékk veitingu fyrir prestakallinu að undan-
genginni lögmætri kosningu.
2. Séra Trausti Pétursson í Sauðlauksdal sótti um Hofs-
Prestakall í Álftafirði (Djúpavog) og hefir nú nýlega verið