Kirkjuritið - 01.01.1953, Blaðsíða 64
62
KIRKJURITIÐ
testamentlig Theologi. (Haandbog i Kristendomskundskab,
Bind II.)
Gillis P:son Wetter: Det romerska várldsváldets Religioner.
Sigurd Grieg: Hellig Tre Konger Kannene fra Heringstad »
Heidal. (De Sandvigske Samlinger, árbok 1931—19lf6.)
Prof. dr. theol. Flemming Hvidberg: Det förisraelitiske Kanaan.
(Haandbog i Kristendomskundskab, Bind I.)
*****
Sálmur.
Ég megna ekki að muna
svo margt, sem liðið er,
og við það verð að una,
þó vilji gleymast mér.
En aldrei gleymist saga sú,
er Kristur lýðnum kenndi
um kærleik, von og trú.
Hinn yngri sonur sagði:
IVIér sel þú arfhlut minn.
Og síðan leiðir lagði,
sem leiddi hann heimurinn.
Hann sóa náði sínum auð,
og fjarri föðurlandi
hann fór að líða nauð.
Ég ferst í hörðu hungri,
mitt hnoss er svínadraf.
Ég finn, að þjáning þungri
er þörf að létta af.
Ég tek mig upp á föðurfund.
Þar glópsku vil ég gráta.
Þá gefst mér friðarstund.
Á hættuleið hann lagði,
og loks hann náði heim.
Og orðin, sem hann sagði,
þá sízt má gleyma þeim.