Kirkjuritið - 01.01.1953, Blaðsíða 70
68
KIRKJURITIÐ
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Biskup mælti mjög gegn frumvarpi þessu og stjóm Presta-
félags íslands hið sama. Gekk hún frá fundarályktun, sem hér
segir, og sendi Alþingi:
„Stjóm Prestafélags íslands telur það ekki hæfu, að prests-
setursjarðir séu skertar án samþykkis hlutaðeigandi prests og
biskups, og mótmælir eindregið fmmvarpi því, er nú liggur
fyrir Alþingi, um heimild til þess að taka leigunámi og byggja
á erfðaleigu hluta af prestssetursjörðum."
Þrátt fyrir þessi mótmæli og vitneskju þingsins um andstöðu
prestastéttarinnar í heild var frumvarpið knúið fram með lítils
háttar breytingum, en tillögur góðviljaðra manna kristni og
kirkju að engu hafðar.
Frumvarp um kirkjubyggingasjóð.
Sigurður Ó. Ólafsson, þingmaður Árnesinga, ber fram á Al-
þingi frumvarp um kirkjubyggingasjóð. Samkvæmt því á ríkis-
sjóður að greiða í kirkjubyggingasjóð 500 þúsund kr. á ári í
næstu 20 ár. Sjóðurinn skal síðan veita söfnuðum vaxtalaus lán
til kirkjubygginga.
Frumvarp þetta er hið merkasta og horfir til heilla kirkju-
lífi þjóðarinnar.
RiT PRESTAFÉLAGS ÍSLANDS:
Kirkjuritið. Nýir kaupendur fá árgangana, sem út eru komnir (seytján
alls, nálega hvert hefti), fyrir 60 kr. Ritið kemur út í 4 heftum, og
kostar 25 kr. árgangurinn. Einstök hefti fást einnig keypt og kosta þa
10 kr. hvert.
Sérstök kostakjör: Sá, sem útvegar } áskrifendur aS ritinu, getur feng-
iS þaS ókeypis frá upphafi hjá afgreiðslunni og svo áfram, meðan þess-
ir áskrifendur standa í skilum.
Prestafélagsritið. 15 árgangar seldir fyrir 40 krónur.
Messusöngvar eftir Sigfús Einarsson fást nú aftur í fallegu bandi. Verð
18 krónur.
Kirkjusaga eftir Vald. Snœvarr skólastjóra. 1 bandi 10 kr. og 22 kr.
Kristin frœði, lesbók handa framhaldsskólum, eftir séra Árelíus Níelsson■
I bandi 40 krónur.
Erindi um Guðs ríki eftir dr. Björn Jónsson. Öb. 2.50, ib. 3.50 og 4.00.
Heimilisguðrœkni. Ób. 2.50. 1 bandi 3.50.
Menntun presta á íslandi eftir séra Benjamín Kristjánsson. Ób. 10 kr.
Rit þessi má panta hjá bókaverði Prestafélagsins,
ungfrú Elízabetu Helgadóttur, Hringbraul 44, sínii 4776, Reykjavík,
bóksölum og prestum.