Kirkjuritið - 01.02.1954, Blaðsíða 38
84
KIRKJURITIÐ
fjölgað í samræmi við íbúatöluna. Ríkið vill ógjarna fjölga
starfsmönnum og er ekki nema gott eitt um það að segja. En
þá grípur fólkið til sinna ráða, þar sem þjóðkirkja er. í fjöl-
mennustu sókn Oslóborgar er búið að safna um 20 þús. kr. í
því skyni að launa prest í þrjú ár. Þá er vonast til að ríkið
taki við og bæti úr þörfinni.
★
Á þessum tímum mikilla fría, á þessari öld orlofanna og
hinna löngu tómstunda er ekki úr vegi að minna á nokkur góð
orð um vinnuna:
a) „Vinnan, hófleg vinna, er það bezta, sem maður hefir til
að fylla líf sitt með; hún göfgar og gleður í einu og fær mann
til að gleyma áhyggjum og sorgum.“ (Bj. Sæm.)
b) Steingrímur Steinþórsson ráðherra telur, að annað af
tvennu, sem mest hafi mótað sig í æsku, sé það, „að vinna og
skoða vinnuna, hver sem hún er, sem sjálfsagðan hlut, sem
hver heiðarlegur þjóðfélagsborgari verður að inna af höndum“.
c) „Ef starfinu linnir, er hjartanu hætt,
hver hvíld er þá drepandi þreyta.“
E. H. Kv.
★
í 13 aldir var kristindómurinn að reyna að vinna Kína. Nú
hafa kommúnistar hrifsað undir sig þetta land á minna en 30
árum.
Það fólk, sem gerir lítið úr kirkjunni og lifir algjöru efnis-
hyggjulífi, án þess að gefa gaum að andlegum verðmætum, —■
það er þetta fólk, sem er að vinna að því að skapa vonlausa,
guðvana efnishyggju-kynslóð, sem verður harðsvíruðu, miskunn-
arlausu einræði að bráð áður en varir ... Því að sannleikurinn
er sá, að frelsið er ávöxtur hinnar kristnu aldar í mannkyns-
sögunni.
★
Það er ekki nema rúmur aldarfjórðungur síðan fram fór
fyrsta alfæreyska guðsþjónustan. Það var í Þórshöfn á jóla-
daginn 1926. Jakob prófastur Dahl messaði.