Kirkjuritið - 01.07.1954, Side 13

Kirkjuritið - 01.07.1954, Side 13
BISKUPSVÍGSLAN 299 prédikunarfræði. Hefi ég jafnhliða kennslunni og í sumar- leyfum samið kennslubækur í tveimur hinna fyrstnefndu handa guðfræðistúdentum og þær komið út ýmist prent- aðar eða fjölritaðar. Einnig samdi ég fleiri bækur, meðal annars rit um Samstofna guðspjöllin, uppruna þeirra og afstöðu sín í milli, og er það prentað sem árbókarritgjörð. Kennslan í þessum helgu fræðum hefir verið mér yndis- leg, svo að mér hefir oft orðið hugsað til þess, hver ham- ingjumaður ég væri að hljóta það æfistarf, er ég kysi helzt allra. Nemendur mínir hafa einnig stutt mjög að því að gjöra mér starfið Ijúft, og á ég þeim mikið að þakka. Þeir hafa einnig mjög margir orðið mér miklu meira en góðir nemendur. Þeir hafa orðið mér nánir persónulegir vinir. Og einhver mesta gleði mín í lífinu hefir verið sú að fá að fylgjast með góðu og giftudrjúgu starfi þeirra fyrir kristilega menningu þjóðarinnar. Af þjónandi prest- um landsins eru um 70 nemendur mínir, en alls hefi ég brautskráð um 11 tugi. Samkennara minnist ég með hlýjum hug. Einn þeirra var áður kennari minn, Sigurður prófessor Sívertsen vígslubiskup. Minning hans er mér heilög, vinátta hans og samstarf. Lengst störfuðum við dr. Magnús Jónsson saman, nær 20 árum, og allan þann tíma var svo bjart yfir samvinnu okkar, að hvergi bar skugga á. Og við yngri starfsbræður mína skil ég með söknuði. 1 háskólaráði hefi ég setið lengi og mörg ár verið vara- forseti þess. Ýms önnur störf hefir Háskólinn falið mér, og hefir mér fallið hið bezta að starfa fyrir hann og talið hann annað heimili mitt. Mörg störf fleiri hafa mér verið falin. Má þar einkum nefna það, að ég var skipaður í nefnd, er samdi frum- varp að barnaverndarlögum, og í skólamálanefnd þá, er undirbjó fræðslulöggjöfina nýju, var ég lengst af formað- ur hennar. Ennfremur var ég skipaður í nefnd þá, sem samdi frumvarp það að skipun prestakalla á íslandi, sem

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.